Hér er á ferðinni ferskt og sumarlegt maíssalat með ostaívafi sem smellpassar vel með grillmatnum beint úr smiðju Helgu Möggu heilsumarkþjálfa sem heldur úti instagram síðunni @helgamagga. Salatið er líka ótrúlega ljúffengt á taco og vefjur. Hægt er að leika sér með þetta salat og jafnvel útbúa snittur eða hvað eina sem ykkur dettur í hug. Maíssaltið er svo skemmtilegt og litríkt á veisluborðið.
Ferskt og sumarlegt maíssalat sem passar vel með öllum grillmat.
Ljósmynd/Helga Magga
Sumarlegt maíssalat
- 2-3 ferskir maís stönglar
- 50 g ostakubbur frá MS
- 120 g sýrður rjómi 10%
- 1 paprika
- 1 hvítlauksrif
- Safi úr einni límónu ásamt berkinum
- Ferskt kóríander eftir smekk, saxið gróft
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. pipar
- 1 tsk. chili
Aðferð:
- Byrjið á því að láta maísinn liggja í volgu vatni í um það bil 10 mínútur.
- Eftir þaðgrillið maísinn grillaður í um það bil 12 - 15 mínútur ogsnúið honum reglulega á grillinu svo allar hliðarnar grillist.
- Kælið maísinn síðan örlítið og skerið hann síðan af stilknum.
- Skerið ostakubburinn og paprikuna í litla bita.
- Pressið hvítlaukinn og blandaði öllu saman ásamt fersku kóríander.
- Berið fram með grillmatnum eða því sem ykkur langar að hafa salatið með.