Hér er á ferðinni gómsætur Shakshuka réttur sem er tilvalinn í hádeginu en líka frábær léttur kvöldverður fyrir þá sem hafa dálæti af réttum með eggjum. Egg er svo góður næringargjafi, stútfull af próteini. Hildur Rut Ingimarsdóttir bloggari á Trendnet á heiður að þessari uppskrift.
„Þetta er nú alls ekki hefðbundinn Shakshuka réttur en mér finnst þessi útgáfa miklu betri,“ segir Hildur. Hér eru ferskir tómatar, laukur, egg, kryddjurtir og ricotta ostur borið fram með ristuðu súrdeigsbrauði. Einfalt og bragðgott, og á vel við á þessum árstíma.
Shakshuka að hætti Hildar með ricottaosti
Fyrir 2-3
- 500 g litlir ferskir tómatar t.d. kokkteiltómatar
- 1 lítill laukur
- Ólífuolía
- 3 hvítlauksrif
- Paprikuduft, chili, salt og pipar eftir smekk
- 4 egg
- 5-6 msk. ricotta ostur
- Ferskar kryddjurtir að eigin vali
- Steinselja, oreganó og timian eftir smekk
Skreytt ofan á
- Ferskar kryddjurtir að eigin vali
- Vorlauk, saxaður
Aðferð:
- Skerið tómata, lauk og ferskar kryddjurtir smátt.
- Steikið tómatana og laukinn upp úr ólífuolíu á pönnu.
- Pressið hvítlauk út í og bætið kryddi og kryddjurtum saman við.
- Hrærið öllu vel saman og látið malla í 5-7 mínútur eða þar til tómatarnir eru orðnir vel mjúkir og maukaðir.
- Gott að loka pönnunni með loki.
- Brjótið eggin út í tómatana og dreifið ricotta ostinum yfir.
- Lokið pönnunni og látið eggin eldast í um 3-4 mínútur eða þar til þau eru eins og þið viljið hafa þau.
- Berið fram með súrdeigsbrauði og njótið.