Sunnudagsuppskriftin að þessu sinni er með ítölsku ívafi en í ítalskri matargerð er einfaldleikinn og ferskt og gott hráefni undirstaðan. Pasta og parmesanostur leika gjarna stórt hlutverk í ítalskri matargerð og svo má nefna ólífuolíuna eða smjörið sem er eitt aðal kryddið. Þessi réttur er bæði einfaldur og ótrúlegur góður og fullkominn til að njóta í komandi viku. Upplagt að gera það með hakkbollurnar malla í ofni í sósunni. Það dugar vel að bera fram þennan rétt með pasta og parmesanosti. Það getur líka verið gott að vera með ferskt salat og nýbakað súrdeigsbrauð fyrir þá sem vilja gera þetta matarmeira. Svo er dásamlegt að spæla landsnámshænuegg frá Hrísey til að bera fram með hakkbollunum að njóta. Þau bragðast svo dásamlega vel og eiga mjög vel við með hakkbollum eins og þessum.
Ítalskar hakkbollur með spaghettí og parmesanosti
Ítalskar hakkbollur
- 500 g nautahakk
- 500 g svínahakk
- ½ dl brauðrasp
- 1 laukur, smátt skorinn
- 1 stk. hvítlaukur, geiralaus (þessi í körfunni)
- 3 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
- 2 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
- 3 msk. rifinn parmesan ostur
- 1 egg
- svartur pipar eftir smekk
- ólífuolía
Aðferð:
- Byrjið á því að blanda saman öllum hráefnum í skál, annaðhvort í hrærivélaskál með króknum eða með lófunum en þá er gott að vera í einnota plasthönskum.
- Mótið síðan jafn stórar bollur úr deiginu.
- Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið hakkbollurnar á báðum hliðum þar til þær verða gullinbrúnar.
- Þær fara síðan í eldfast mót með sósunni yfir í bakarofn í um það bil 20 til 25 mínútur.
Ítalska basilíku- og hvítlaukssósan
- 1 hvítlaukur, geiralaus marinn (þessi í körfunni)
- ½ laukur, smátt skorinn
- 2 dósir hakkaðir tómatar að eigin vali
- 2 dl vatn
- ½ kjúklingateningur
- 1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
- svartur pipar eftir smekk
- ólífuolía eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ólífuolíu við vægan hita í potti, steikið laukana í olíunni í um það bil mínútur eða þar til þeir eru orðnir mjúkir.
- Bætið öllu hinu í pottinn og leyfið sósunni að malla á meðan þið búið til hakkbollurnar. Þegar hakkbollurnar eru tilbúnar er þeim raðað í eldfast mót og sósunni hellt yfir og gott er að rífa niður smá parmesan ost yfir líka.
- Síðan er fatið með hakkbollunum sett í ofn við 200°C hita í um það bil 20 til 25 mínútur.
- Með þessum dásemdar ítölsku hakkbollum er upplagt að bera fram pasta, allra best er að vera með spaghettí eða linguini.
- Sjóðið pasta sem þið viljið nota samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
- Berið fallega fram og njótið.
Undursamlega gott og fullkomið að bæta við spældu eggi ofan á sem bragð er af.
Ljósmynd/Sjöfn