Nýr verkefna- og markaðsstjóri Miðborgarinnar

Róbert Aron Magnússon hefur gríðarlega reynslu af markaðsmálum og verkefnastjórnun …
Róbert Aron Magnússon hefur gríðarlega reynslu af markaðsmálum og verkefnastjórnun sem framkvæmdastjóri Götubitans. mbl.is/Árni Sæberg

Róbert Aron Magnússon hefur verið ráðinn sem markaðs- og verkefnisstjóri „Miðborgarinnar – Reykjavíkur - Félagasamtaka„ sem er nýtt markaðsfélag miðborgarinnar sem var stofnað í mars síðastliðnum.

268 veitingastaðir í miðborginni

Tilgangur og markmið félagsins er að kynna miðborgina sem spennandi og skemmtilegan áfangastað og upplýsa um þann mikla fjölbreytileika sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Í miðborginni eru 837 rekstraraðilar og er þar er t.d. að finna 268 veitingastaði, 277 verslanir, 30 kaffihús, 22 hárgreiðslustofur, 44 listagallerí og listasöfn og 72 fataverslanir svo fátt sé nefnt. Að auki hýsir miðborgin nokkra af fjölmennustu viðburðum á Íslandi eins og Menningarnótt, Hinsegin daga, Götubitahátíðina í Hljómskálagarðinum, HönnunarMars og Iceland Airwaves.

Framkvæmdastjóri Götubitans

Róbert Aron Magnússon hefur gríðarlega reynslu af markaðsmálum og verkefnastjórnun sem framkvæmdastjóri Götubitans, en þar hefur hann unnið náið með Reykjavíkurborg við skipulagningu á hinum ýmsu viðburðum í miðborginni og víðar. Hann er með meistaragráðu frá University of Westminster í Business Management og lauk nýlega námi sem viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur

„Ég er horfi björtum augum til framtíðarinnar og er fullur tilhlökkunar til starfsins. Miðborgin er spennandi áfangastaður og hefur upp á margt að bjóða. Matarmenning blómstrar til að mynda og ég mun halda áfram með Götubitann líka, hvergi nærri hættur,“ segir Róbert Aron.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert