Einfaldleikinn er oft bestur og sérstaklega í byrjun vikunnar. Á uppskriftasíðunni Gott í matinn er að finna þessa uppskrift af ljúffengu tómatpasta með basilíku og mozzarellakúlum sem kemur úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttur matgæðings. Þennan rétt er fljótlegt að framreiða og ekta fyrir alla sælkera. Rétturinn er með heimatilbúinni tómatbasil sósu og ferskum mozzarella.
Pastað má bera fram bæði heitt og kalt og því hægt að gera það fram í tímann. Furuhneturnar gefa stökkt og gott bragð á móti mjúkum mozzarellaostinum. Frábær réttur sem hægt er t.d. að bera fram í stað ostabakka til tilbreytingar. Ef þið viljið vera með matarmeira pasta er upplagt að bjóða upp á grillaðar kjúklingalundir með pastanu.
Tómatpasta með basilíku og mozzarellakúlum
Fyrir 4
- 50 ml ólífuolía
- 5 stk. hvítlauksgeirar
- 600 g heilir tómatar í dós
- 2 tsk. sjávarsalt
- ½ tsk. svartur pipar
- 12 stk. lauf af ferskri basilíku
- 500 g pasta að eigin vali
- 10 stk. litlir tómatar
- 30 g Goðdala Feykir eða parmesan
- 50 g furuhnetur
- 180 g mozzarellakúlur eða mozzarella perlur (1 dós)
Aðferð:
- Hitið ólífuolíu í potti yfir vægum hita, saxið smátt niður hvítlauk og setið saman við.
- Leyfið olíunni að sjóða létt þar til hvítlaukurinn er orðið ljós gylltur að lit.
- Hellið tómötunum í dós saman við ásamt safanum, grófsaxið þá með kartöflustappara eða sleif, passið þó að stappa þá ekki of mikið þar sem sósan á að vera gróf.
- Grófsaxið ferska basilíku og blandið saman ásamt salti og pipar og látið sósuna sjóða í það minnsta 10 mínútur yfir meðalháum hita. Sósan á að þykkna.
- Á meðan sósan þykknar sjóðið þið pasta í söltuðu vatni eftir leiðbeiningum á pakkningu.
- Þegar pastað er soðið, hellið vatninu af og blandið því strax saman við sósuna.
- Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið pastað á fallegan disk eða í grunna skál.
- Skerið niður ferska tómata og raðið þeim yfir pastað ásamt mozzarellakúlum og rifnum Goðdala Feyki eða parmesan osti.
- Ristið furuhnetur ásamt 1 msk. af ólífuolíu, gætið þess að hræra stanslaust í hnetunum því þær brenna auðveldlega. Þetta tekur um 2-3 mínútur.
- Hellið hnetunum yfir pastað ásamt nokkrum ferskum laufum af basilíku.
- Gott er að bera pastað fram með auka skammti af Feyki eða parmesan, góðri ólífuolíu og meira sjávarsalti fyrir þá sem vilja.
- Hægt er að beta fram pastað heitt eða kalt.