Næstu vikur og mánuði munu lesendur matarvefsins fá að njóta uppskrifta á hverjum laugardegi sem koma úr hinu leyndardómsfulla eldhúsi í Hússtjórnarskólanum. Mun skólameistarinn Marta María Arnarsdóttir þar á bæ svipta hulunni af nokkrum vel völdum réttum sem eiga sér sögu og hafa fylgt Hússtjórnarskólanum gegnum tíðina og glatt mörg matarhjörtu.
Marta María er að sigla inn í sinn annan vetur í því starfi. Hún er 27 ára gömul og býr ásamt sínum betri helmingi Jakobi Helga Jónssyni og hundinum Línu úti á Seltjarnarnesi. Hennar helstu áhugamál samtvinnast vel við kennslugreinar Hússtjórnarskólans, líkt og eldamennska og bakstur, prjón, hekl og útsaumur. Þegar hún er heima hjá sér fer hún gjarnan í eldhúsið að dunda sér við bakstur eða eldamennsku eða grípur til einhverrar handavinnu. Hússtjórnarskólinn er einnar annar nám á framhaldsskólastigi og stunda nú 20 nemendur nám við skólann. Flestir nemendur skólans eru í kringum tvítugsaldurinn og hluti þeirra býr í skólanum á heimavistinni sem er á efstu hæð skólans. Hússtjórnarskólinn, eða Húsó líkt og hann er iðulega kallaður, er í hjarta Reykjavíkur á Sólvallagötu 12.
Húsó-uppskriftir hafa áður ekki litið dagsins ljós opinberlega nema fyrir nemendur skólans. „Uppskriftirnar sem ég deili hér með ykkur í vetur eru margprófaðar og háþróaðar og því geta þær hreinlega ekki klikkað. Við erum miklir sælkerar í Hússtjórnarskólanum, reynum að borða hollan, næringarríkan og fjölbreyttan mat og reynum að gæta að því að matarskostnaður fari ekki fram úr hófi. Þegar keypt er í matinn þarf að huga að því að ekkert fari til spillis og síðan er mikilvægt að nýta afganga, bæði upp á matar- og peningasóun að gera. Þegar við veljum hvað á að vera í matinn þarf að huga að ofangreindu. Einnig leggjum við ríka áherslu á að halda í íslenskar matarhefðir. Uppskriftir skólans eru hreinlega mikill menningararfur okkar Íslendinga sem gaman er að deila nú með þjóðinni,“ segir Marta María stolt af matarmenningunni sem þar ríkir.
Í skólanum kennum við meðal annars helstu borðsiði og matarvenjur. „Við kennum nemendum hvernig æskilegt er að leggja á borð, hvernig diskamottur, diskar, skálar, hnífapör, glös og þess háttar á að vera stillt upp. Einnig hvernig nota eigi servíettur, leggja frá sér hnífapör og þannig. Við reynum öll að hjálpast að þegar við fáum okkur á diska og byrjum ekki að borða á hverju borði fyrir sig fyrr en allir eru búnir að fá sér á diskinn, annað er hreinlega dónalegt. Einnig erum við ekki í símanum við matarborðið og rjúkum að sjálfsögðu ekki frá borði fyrr en allir eru búnir að borða, saddir og sælir. Það eru þessi smáatriði sem skipta svo miklu máli. Það er mikilvægt að vera kurteis þegar manni er til að mynda boðið í matarboð eða þá nýta sér þessa kunnáttu þegar maður fer fínt út að borða.
Uppskriftirnar sem við deilum með lesendum að þessu sinni eru tilvaldar sem forréttur eða sem léttur hádegismatur. Þær eru fljótlegar, ódýrar, næringarríkar og einstaklega ljúffengar.“
Vert er að geta þess að skólinn er 81 árs og eru sumar uppskriftirnar því vel gamlar í grunninn og heldur betur skotheldar, þótt margar nýjar hafi bæst við í gegnum tíðina. „Fyrstu uppskriftirnar sem við ætlum að ljóstra upp er þessi uppskrift af ljúffengri asparssúpu og brauðbollum eins og ömmur okkar hafa matreidd í áranna rás,“ segir Marta María.
Asparssúpa
Aðferð:
Brauðbollur
Aðferð: