Þessar dásamlegu orkustangir með appelsínusúkkulaði er frábærar til að njóta í millimál, með kaffinu og jafnvel í nestisboxið. Uppskriftin kemur úr smiðju Júlíu Magnúsdóttur heilsumarkþjálfa sem heldur úti lífsstílsbloggsíðunni Lifðu til fulls. Orkustangirnar eru í miklu uppáhaldi hjá Júlíu og hún segist gjarnan gera góðan skammt til að eiga til góða. Þetta eru í raun hráfæðisstangir og eru súper hollar.
„Þessar fara beint í frystinn hjá mér og ég er heppin ef þær endast út vikuna. Það er svo þægilegt að kippa einni orkustöng með sér í nesti eða fá sér eina með kaffinu seinnipartinn. Þær eru einfaldlega svo góðar að ég stelst til þess að fá mér í eftirrétt líka,“ segir Júlía og glottir.
Orkufæða, próteinríkar og sætar
Stangirnar eru með sannkallaðri orkufæðu, próteinríkar og fullkomlega sætar. „Uppskriftin er innblásin frá krúttlegum hráfæðisveitingastað Ecru í Ítalíu. Hráfæði er sannarlega ein sú orkuríkasta fæða sem völ er á og upplagt að hafa aðeins af því í mataræðinu,“ segir Júlía og vona að þessi komi sé vel fyrir marga.
Girnilegar orkustangirnar og laða að augað.
Ljósmynd/Júlía Magnúsdóttir
Orkustangir með appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetum
- 1 ½ bolli döðlur
- 1 – 1 ½ bolli möndlur
- ½ bolli spírað kínóa
- ½ tsk. vanilludropar eða notið stevíu með vanillubragði
- örlítið salt
- 100 g sykurlaust appelsínusúkkulaði
- ½ bolli pistasíuhnetur eða möndlur saxað smátt
- 1 appelsína, börkur rifin (val)
Aðferð:
- Daginn áður er þetta gert.
- Leggið kínóa í bleyti í 1 klukkustund eða lengur.
- Setjið kínóað í sigti og skolið undir krana með köldu vatni.
- Færið þá kínóað í stóra glerkrukku eða spírunarkrukku ef hún er til.
- Hér er hægt að fara tvær leiðir til að spíra, annaðhvort er hægt að setja fínt sigti yfir lok krukkunnar og hvolfa svo sigtinu yfir skál.
- Einnig er hægt að setja viskustykki/grisju yfir lokið og hvolfa því svo kínóað geti andað.
- Skolið kínóa á nokkra klukkustunda fresti, passið að tæma allt vatn af.
- Sjálfsagt eru þið þó ekki að vakna á nóttinni að skola af.
- Þetta er gert af og til nokkrum sinnum yfir daginn.
- Aðalatriði er að halda spírunum þurrum.
- Spírur munu koma eftir um það bil 24 klukkustundir, en þið getið haldið áfram að spíra í 2 daga ef þið viljið fá stærri spírur.
- Daginn eftir gerið þið eftirfarandi.
- Setjið döðlur og hnetur í matvinnsluvél og hrærið saman.
- Bætið út í spíruðu kínóa og hrærið örlítið, deigið ætti að byrja að móta smá deigkúlu og haldast vel saman.
- Það fer eftir stærð á möndlum og mýkt á döðlum þið gætuð þurft að nota aðeins meira en uppskrift gefur.
- Bætið við annaðhvort meiri döðlum til að deigið haldist betur saman s.s verði meira klístrað eða meira af möndlum ef deigið er of klístrað.
- Mótið í lagnar stangir og leggið til hliðar.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði.
- Á meðan súkkulaðið bráðnar er gott að saxa aðeins niður hnetur og hafa til appelsínu ásamt rifjárni.
- Júlía notar sykurlaust appelsínusúkkulaði og pistasíuhnetur.
- Hellið súkkulaði yfir stangirnar og dreifið hnetum yfir.
- Fyrir enn meira appelsínubragð og skreytingu er hægt að rífa appelsínubörk yfir allt saman. Setjið í frysti í 1 klukkustund eða þar til súkkulaðið hefur harðnað.
- Njótið þegar ykkur langar í orkubita.