Tagine með kjúklingi er bragðgóður pottréttur frá Marokkó sem rífur í. Fullkominn haust- og vetrarréttur og ótrúlega gaman að bera hann fram í Tagine potti með loki eins og Marokkóbúar gera. Rétturinn inniheldur nokkrar tegundir af kryddum sem koma bragðlaukunum á flug og er borinn fram með hrísgrjónum. Það má bæði bera hrísgrjónin fram sér eða setja réttinn ofan á hrísgrjónabeð. Í réttinum er ein niðursoðin sítróna, ef erfitt reynist að finna hana í matvöruverslunum er ráð að útbúa sína eigin niðursoðnu sítrónu. Það tekur 3 til 4 daga að útbúa niðursoðna sítrónu.
Tagine með kjúklingi
- 1 heill kjúklingur, skorinn í 8 bita
- 2 – 3 msk. olía
- 1 laukur, skorinn í sneiðar
- 2-3 litlir hvítlaukar t.d. þessir í körfunni, smátt skornir
- ½ msk. raspaður engifer
- 2 tsk. arabísk kryddblanda, t.d. Arabískar nætur frá Pottagöldrum
- Örlítið saffran, milli fingra
- 1 tsk. cayennepipar
- ½ msk. kúmín
- Pipar og salt eftir smekk
- 3-4 dl vatn
- 1 lúka ferskt kóríander
- 1 niðursoðin sítróna
- 5-8 stk. edamame baunir, í belgnum (má sleppa)
- 1 krukka svartar ólífur, steinlausar
- Ferskt kóríander til skrauts
Aðferð:
- Byrjið á því að skola kjúklinginn og skerið hann í 8 bita.
- Steikið kjúklinginn á pönnu í skamma stund og setjið hann síðan í þykkbotna pott.
- Setjið laukinn, hvítlauk, vatn, sítrónu ofan í pottinn.
- Blandið síðan öllum kryddunum saman við.
- Látið sjóða við vægan hita í um það bil 30 mínútur.
- Bæti þá ólífunum og edamame baununum saman við og látið sjóða í stutta stund í viðbót.
- Kryddið og smakkið til eftir þörfum.
- Skreytið réttinn með fersku kóríander.
- Berið fram með hrísgrjónum eða ofan á hrísgrjónabeði og njótið.