Þessa auðveldu og góðu hvítlaukssósu er gott að bera fram með ýmsum réttum eins og fiski, kjöti, pæjum, salati, kjúklingi, steiktu grænmeti eða jafnvel ofan á pitsuna, bara eins og hvítlaukssósu. Uppskriftin kemur úr smiðju Hönnu Þóru listakonu og sælkera sem heldur úti bloggsíðunni Hanna.is sem er ótrúlega gaman að skoða, sérstaklega uppskriftirnar. Hanna mælir eindregið með þessari hvítlaukssósu líkt og við á matarvefnum. Tekur örstutta stund að gera sósuna og hráefnalistinn er stuttur, einungis fjögur hráefni.
„Mér finnst hún góð með öllu en það er kannski ekki alveg að marka þá sem eru mikið fyrir hvítlauk, þeir elska að hafa hann í öllu,“ segir Hanna og hlær.
Hvítlaukssósan hennar Hönnu
Aðferð: