Bleikur draumur Evu Maríu

Bleiki draumurinn hennar Eva Maríu Hallgrímsdóttur er hinn fullkomni eftirréttur …
Bleiki draumurinn hennar Eva Maríu Hallgrímsdóttur er hinn fullkomni eftirréttur til að bera fram á bleika deginum. Ljósmynd/Eva María

Í til­efni þess að bleiki dag­ur­inn er í dag höldum við áfram að birta uppskriftir af bleikum kræsingum sem vert er að bjóða upp í tilefni dagsins og í raun alla helgina með helgarkaffinu. Þetta er hvatn­ing til les­enda til að standa fyr­ir bleiku kaffi­hlaðborði eða bleik­um kræs­ing­um í dag og um helgina svo að all­ar konur sem greinst hafa með krabba­mein finni fyrir stuðningi lands­manna og sam­stöðu. 

Eva María Hallgrímsdóttir sælkeri og eigandi Sætra Synda tekur þátt í bleika deginum að miklu krafti, bæði í vinnunni og heima í faðmi fjölskyldunnar. Eva María er þekkt fyrir sínar fallegu og ljúffengu bleiku kökur hjá Sætum Syndum auk þess sem hún er fræg fyrir bleika kampavínskaffihúsið og bleikar veislur.

Bjóða upp á fallegar bleikar kræsingar í allan dag

„Varðandi bleika daginn þá að sjálfsögðu tek ég og Sætar Syndir þátt í honum en það er brjálað að gera hjá okkur í kökugerðinni að undirbúa kræsingar fyrir hann en Sætar Syndir bjóða upp á bleikar kræsingar eins og fallega bleika veislubakka fyrir daginn sem og skemmtilegar brjóstakökur fyrir daginn. Gaman að vera mismunandi vörur og áherslur en 20% af öllum veitingum tengdum Bleiku slaufunni rennur til átaksins,“ segir Eva María. Í dag verður nóg til af bleikum kræsingum hjá Sætum Syndum sem hægt er að kaupa og taka með í vinnuna eða heim að njóta.

Eva María ætlar líka að gera bleikan eftirrétt í tilefni dagsins fyrir fjölskylduna sem ber heitið Bleikur draumur en það er eftirréttamús með LU kex botni sem bráðnar í munni. „Bleiki draumur slær ávallt í gegn og er hinn fullkomni eftirréttur á þessum degi,“ segir Eva María að lokum.

Bleikur draumur

Bleik eftirréttamús með LU kexbotni

  • 350 g frosin hindber
  • 2/3 bolli sykur
  • 1 pk gelatín blöð og ¼ bolli vatn til að mýkja blöðin
  • 1 ½ bolli kaldur rjómi
  • LU kex 

Aðferð:

  1. Byrjið á að leggja gelatín blöðin í vatn til að mýkja blöðin og þar til þau eru búin að sjúga upp allt vatnið. 
  2. Á meðan beðið er eftir að gelatínið mýkist setjið frosin hindber, sykur og smá vatn í pott og hitið þar til berin leysast upp og blandan verður að sósu.
  3. Getur tekið 5-6 mínútur.
  4. Þegar berjablandan er klár er best að setja hana í blandara í eina mínútu eða þar til blandan er orðin alveg slétt.
  5. Næst smellið þið blöndunni aftur í pottinn og bætið við gelatín blöðunum og hitið á vægum hita þar til blöðin eru uppleyst.
  6. Passið að hafa ekki of mikinn hita því blandan getur brunnið.
  7. Þegar berjablandan er klár setjið hana til hliðið og leyfið að kólna.
  8. Þeytið næst rjómann.
  9.  Þegar rjóminn er orðinn stífþeyttur og berjablandan er orðin köld, blandið þá rjómanum og berjablöndunum varlega saman í höndunum þar til blandan verður slétt og samfelld.
  10. Setjið LU kex í matvinnsluvél og maukið. 
  11. Finnið falleg kampavínsglös eða glös á fæti, setjið kexmulninginn í botninn og svo músina ofan á það og skreytið.
  12. Ég notaði þurrkuð æt blóm en hægt að leika sér með fersk blóm eða ávexti.
  13. Setjið glösin inn í kæli þar til það á að bera þau fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert