Á föstudaginn síðastliðinn, 20. október, opnaði nýr vínbar með pomp og prakt, sem ber heitið Cernin Vínbar og er í raun fyrsti alíslenski vínbarinn og er staðsettur á Laugavegi 41 í hjarta miðborgarinnar. Mikið var um dýrðir á opnuninni og gleðin var við völd. Róbert Wessman og Ksenia Shakhmanova, stofnendur Maison Wessman tóku á móti gestum.
Nafn vínbarsins er dregið af Saint-Cernin vínunum sem eru í boði á Cernin vínbarnum og eru framleidd af Maison Wessman. Markmið Mason Wessman er að framleiða vín i hæsta gæðaflokki á heimsvísu. „Eftir að hafa unnið að þessu markmiði mörg ár getum við nú í fyrsta sinn boðið upp á alla vörulínu Maison Wessman á íslenskum markaði,“ sagði Róbert í tilefni opnunnar.
Í gleðinni á föstudaginn var boðið upp á snittur sem paraðar voru með víninu á barnum. Michel Rolland, einn þekktasti vínsérfræðingur heims spilar lykilhlutverk í framleiðslu Maison Wessman. Hann hefur starfað áður með bestu vínframleiðendum heims, til að mynda í Frakklandi, Bandaríkjunum, Chile, Argentínu og fleiri stöðum.