Þessi gómsætu og skemmtilegu hrekkjavöku bollakökur koma úr smiðju Guðrúnar Erlu Guðjónsdóttur, bakara og nema í konditor hjá Mosfellsbakarí. Guðrún ætlar að halda upp á hrekkjavökuna í ár og býður meðal annars upp á þessar dýrindis hrekkjavöku bollakökur sem hún skreytir á svo skemmtilegan hátt. Guðrún er þekkt fyrir að bjóða upp á ljúffengar kökur sem erfitt er að standast enda er hún sigurvegari keppninnar um Köku ársins í ár auk þess sem hún hlaut annað sætið í fyrra.
Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og nemi í konditori er einstaklega hæfileikarík í sínu fagi og vann meðal annars keppnina um Köku ársins í ár.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Bollakökurnar hennar eru skreyttar með gómsætu appelsínugulu smjörkremi í anda hrekkjavökunnar sem brosa gleitt framan í þann sem þær tekur.
Glaðbeittar og fallegar hrekkjavöku bollakökurnar hennar Guðrúnar í anda hrekkjavökunnar sveipaðar fallegum haustlitum
mbl.is/Kristinn Magnússon
Ómótstæðilega freistandi að grípa þessar og borða.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Hrekkjavöku bollakökur
U.þ.b. 16 stk.
Bollakökur
- 200 g hveiti
- ½ tsk. salt
- 1 tsk. matarsódi
- 200 g sykur
- 200 g mjúkt smjör
- 2 tsk. vanilludropar
- 4 egg
- 100 g köku “sprinkles”
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C.
- Vinnið sykur og smjör saman með spaða í matreiðsluvél.
- Sigtið öll þurrefnin (nema sprinkles) saman í skál.
- Þeytið sykur og smjör vel saman og þegar blandan er orðin hvít og falleg, setjið þá eitt og eitt egg út í, og hrærið varlega.
- Þegar eitt egg er eftir, setjið þá helminginn af þurrefnum út í, og síðan setjið þið síðasta eggið út í.
- Síðan bætið þið restin af þurrefnunum út í og blandið þar allt er komið saman.
- Að lokum setjið þið sprinkles út í blönduna og blandið bara rétt svo saman.
- Setjið blönduna í bollakökuform og bakið við 180°C hita í 15 til 20 mínútur.
- Gott er að nota lítið prik til að stinga í bollakökurnar til að sjá hvort þær séu tilbúnar.
Smjörkrem
- 120 g smjörlíki
- 120 g smjör
- 330 g flórsykur
- 6 g vanilludropar
- 4-5 dropar appelsínugulur matarlitur
Aðferð:
- Byrjið á því að þeyta saman smjör og smjörlíki þar til blandan er orðin mjúk.
- Bætið síðan flórsykrinum út í og blandið vel saman á miðlungs hraða.
- Setjið síðan vanilludropana út í, og þeytið smjörkremið á hæsta hraða í 5 til 10 mínútur eða þangað til það er orðið létt og ljóst.
- Að lokum setjið þið matarlitinn út í eftir smekk.
Skreyting
- Dökkt súkkulaði eftir smekk
- Smjörpappír
- Appelsínugult smjörkrem
Aðferð:
- Takið eina bollaköku og sprautið appelsínugula smjörkreminu með stjörnutjúllu.
- Takið bollakökuna og snúið henni á haus og ýtið henni örlítið niður á smjörpappírinn, og frystið síðan í smá stund.
- Þegar bollakakan er nógu frosin þannig að hægt er að lyfta henni upp frá smjörpappírnum, getið þið byrjað að skreyta.
- Bræðið dökkt súkkulaði og sprautið „jack-o’-lantern“ andlit á bollakökuna.
- Bíðið smá eftir að smjörkremið þiðni og berið síðan fram og njótið.