Fyrsti vetrardagur var í gær og vetrinum fylgir kólnandi veður og skammdegi. Þá er saðsamur matur eins og ljúffengir lambakjötsréttir vinsælir á borðum landsmanna sem ylja skrokknum. Lambaskankar eru í uppáhaldi hjá mörgum enda einstaklega mjúkur og góður biti. Hér eru saman komnar nokkrar af vinsælustu uppskriftunum að lambaskönkum með dýrindis meðlæti sem birst hafa á matarvefnum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.