Pósthús Mathöll í samstarf við Dineout 

Þórður Axel Þórisson, framkvæmdastjóri Pósthús Mathallar, og Inga Tinna Sigurðardóttir, …
Þórður Axel Þórisson, framkvæmdastjóri Pósthús Mathallar, og Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout. Ljósmynd/Marinó Flóvent

Pósthús Mathöll og Dineout hafa sameinað krafta sína og hafið samstarf. Mathöllin hefur tekið í notkun hugbúnaðarlausnir Dineout sem hefur nú útvíkkað vöruframboð sitt til að geta þjónustað mathallir. Veitingastaðir Pósthús Mathallar hafa nú þegar tekið lausnir Dineout í notkun en Dineout er stærsta markaðstorg landsins fyrir veitingastaði.

Fyrsta mathöllin sem nýtir sér hugbúnaðinn

„Við hjá Dineout erum virkilega spennt fyrir þessu samstarfi enda er Pósthús Mathöll fyrsta mathöllin sem nýtir sér okkar hugbúnað og þjónustu frá a til ö. Hér hvíla mikil tækifæri þar sem lausnir Dineout tala allar saman sem gerir veitingastöðunum kleift að vinna með einn bakenda og framkvæma þar allar helstu aðgerðir á einum stað. Það mun á endanum minnka flækjustig til muna, lækka kostnað, auka tekjur og auðvelda allt utanumhald. Markaðstorgið okkar dineout.is fær yfir milljón fléttingar í hverjum mánuði og í september slógum við met þar sem yfir 700.000 manns settust til borðs í gegnum dineout.isVið bjóðum Pósthús Mathöll velkomna í Dineout-fjölskylduna sem telur nú yfir 400 veitingastaði,“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout.

Mikill heiður að vinna með framsæknu fyrirtæki

„Það er afar ánægjulegt að hefja loks samstarf við Dineout og vera þannig hluti af stærsta markaðstorgi landsins. Veitingastaðir innan Pósthús Mathallar sem notast við hugbúnað og kerfi Dineout eru átta talsins. Þær lausnir sem mathöllin notast við eru allar útvegaðar af Dineout og í því felst mikil hagræðing fyrir staðina sem geta nú frekar einbeitt sér að því sem virkilega skiptir máli í sínum rekstri. Við hlökkum til samstarfsins og það er mikill heiður að vinna með eins framsæknu fyrirtæki og Dineout, segir Þórður Axel Þórisson, framkvæmdastjóri Pósthús Mathallar.

Níu veitingastaðir í Pósthús Mathöll

Í Pósthús Mathöll eru staðsettir alls níu veitingastaðir sem bjóða upp á hefðbundna eða nýstárlega matargerð, allt frá ítölskum sælkerapitsum til handgerðra kokteila. Veitingastaðir innan Pósthús Mathallar eru Funky Bhangra, Mossley, Finson, Fuku Mama, Djúsí Sushi, Pizza Popolare, Enoteca, Yuzu og Drykk. Pósthús Mathöll er til húsa við Pósthússtræti 3-5 í miðbæ Reykjavíkur. Veröld Pósthús Mathallar á dineout.is má sjá hér og vefsíða Pósthús Mathallar hér.

Inga Tinna stofnaði Dineout árið 2017

Dineout var stofnað árið 2017 af Ingu Tinnu Sigurðardóttur. Allar hugbúnaðarlausnir fyrirtækisins hafa verið hannaðar og gerðar frá grunni af starfsfólki fyrirtækisins. Dineout býður upp á borðabókunarkerfi, matarpöntunarkerfi, kassakerfi (POS), rafræn gjafabréf, afsláttarkerfi (Coupons), viðburðakerfi, gerir vefsíður, býður upp á sjálfvirkar greiðslur í gegnum QR kóða og margt fleira. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 20 manns sem vinna meðal annars að hugbúnaðarþróun, sölu og þjónustu. Starfsstöðvar Dineout eru bæði á Íslandi og í Kaupmannahöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert