Tjáðu ást þína með hjartalöguðu eggi

Rómantískt að bjóða ástinni upp á spælt egg í hjartalöguðu …
Rómantískt að bjóða ástinni upp á spælt egg í hjartalöguðu formi og ferskan appelsínusafa upp í rúm. Samsett mynd

Það þarf ekki að vera flókið að bjóða ástinni þinni upp á huggulegan morgunverð. Þú getur einfaldlega spælt egg í hjartalöguðu formi. Eina sem þú þarft að gera er að spæla eggið í hjartalöguðu formi, bera það fram á fallegum disk og krydda til með chiliflögum. Síðan er lag að færa ástinni þinni hjartaeggið á bakka ásamt ferskum appelsínusafa og nýbökuðu brauði ef vill, til dæmis japönsku mjólkurbrauði, upp í rúm og bjóða góðan dag. Það er ást.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert