Þessi nautapottréttur er unaðslega ljúffengur og á vel við á fallegu vetrarkvöldi. Pottréttur og kartöflumús er fullkomin blanda til að njóta í faðmi fjölskyldunnar við huggulegheit og kertaljós. Heiðurinn af þessari uppskrift á Berglind Hreiðars lífsstíls- og matarbloggarinn sem allir þekkja hjá Gotterí og gersemar. Berglind kann sitt fag vel og er líka fagurkeri sem ber matinn fallega fram á borð.
Nautapottréttur í rauðvínssósu
Fyrir 6
Pottréttur
- 1,2 kg nautainnlæri (í sneiðum), eða annað svipað nautakjöt
- 1 stór laukur
- 500 g gulrætur
- 4 hvítlauksrif
- 60 g hveiti
- 750 ml vatn
- 50 ml Oscar fljótandi nautakraftur
- 500 ml Muga rauðvín eða rauðvín að eigin val
- 2 msk. tómatpúrra
- 4 lárviðarlauf
- 3 timiangreinar
- Steikarkrydd
- Salt + pipar
- Ólífuolía til steikingar
Aðferð:
- Skerið kjötið í bita (c.a 5 x 5 cm)
- Steikið það upp úr ólífuolíu, brúnið vel og kryddið eftir smekk. Steikja þarf kjötið í 2-3 skömmtum og geymið bitana síðan til hliðar á disk.
- Skerið laukinn niður í sneiðar og gulræturnar í bita, setjið í pottinn sem þið steiktuð kjötið í án þess að þrífa hann á milli.
- Bætið aðeins ólífuolíu saman við og leyfið að malla við meðalhita þar til laukurinn mýkist, rífið hvítlaukinn einnig saman við í lokin.
- Stráið hveitinu næst yfir grænmetið og hrærið aðeins í öllu saman og hellið síðan vatni, nautakrafti, rauðvíni og tómatpúrru saman við og hrærið vel saman.
- Setjið kjötið nú aftur í pottinn ásamt lárviðarlaufum og timian, náið suðunni upp að nýju og lækkið síðan alveg niður, setjið lokið á pottinn og leyfið að malla í 2 klukkustundir.
- Sjóðið kartöflur fyrir kartöflumúsina svo þær séu tilbúnar að þessum 2 klukkustundum liðnum.
- Takið lokið af pottinum eftir 2 klukkustundir og leyfið að malla áfram í um 15-20 mínútur á meðan þið útbúið kartöflumúsina.
- Saltið mögulega aðeins meira eða bætið við nautakrafti, allt eftir smekk.
Kartöflumús
- 1,3 kg kartöflur
- 50 g smjör
- 2 msk. sykur
- 1 tsk. salt
- 200 ml nýmjólk
Aðferð:
- Sjóðið og flysjið kartöflurnar (eða öfugt, það má líka).
- Setjið þær í hrærivélarskálina ásamt smjöri, sykri og salti og blandið saman á lægstu stillingu.
- Bætið mjólkinni saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.
- Berið fram með pottréttinum og njótið vel.