Café De Paris steikarsmjörið er algjör klassík til að lyfta heiðarlegri helgarsteik upp á nýjar hæðir. Kryddsmjörið eða steikarsmjörið er einfalt, fljótlegt og hrikalega bragðgott og einfalt mál að laga nóg af því til að geyma í frysti til síðari nota. Aðferðina getið þið séð í Instagram færslunni hjá samfélagsmiðlastjörnunni Michael Giacchino hér fyrir neðan.
Franskt steikarsmjör
- 100 g smjör, mjúkt
- 2 msk. skalotlaukur, mjög smátt saxaður
- 6 hvítlauksrif, söxuð fínt
- 3 ansjósuflök, smátt skorin
- 1 tsk. sítrónusafi
- 1 tsk. Worcestershire sósa
- 1 tsk. Dijon sinnep
- 1 tsk. karríduft
- ½ tsk. sæt paprika
- 1 tsk. salt
- 2 tsk. ferskt estragon, smátt saxað
- 2 tsk. fersk steinselja, smátt söxuð
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin saman í matvinnsluvél og blandið vel saman þar til smjörið fær þessu fallegu mjúku áferð líkt og sést í myndbandinu.
- Setjið síðan í smjörið í ílangt eldfast mót eða í formkökuform og kælið.
- Skerið síðan sneiðar eða kubba af smjörbitanum.
- Upplagt að nota bökunarpappír við skurðinn líkt og sést í myndbandinu.
- Njótið vel.