Milljón dollara ídýfa

Syndsamlega ljúffeng ídýfa sem á eftir að slá í gegn …
Syndsamlega ljúffeng ídýfa sem á eftir að slá í gegn í öllum boðum. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Þessi ídýfa toppar allar ídýfur, enda fékk hún nafnið milljón dollara ídýfa hjá Thelmu Þorbergsdóttur uppskriftahöfundi sem á heiðurinn af uppskriftinni. Thelma heldur úti uppskriftasíðunni Freistingar Thelmu. Ídýfan slær alltaf í gegn og er það fyrsta sem klárast á veisluborðinu. Ídýfan er fljótgerð og einstaklega góð með snakki eða kexi við hvaða tilefni sem er.

Milljón dollara ídýfa

  • 250 g rjómaostur
  • 1 dós sýrður rjómi 10%
  • 1 pk. Kims dipmix með sýrðum rjóma og púrrulauk
  • 170 g rifinn 4 osta blanda frá Gott í matinn
  • ½ rauðlaukur
  • 6 stk. beikonsneiðar
  • Graslaukur 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C, setjið bökunarpappír á bökunarplötu og eldið beikonið þar til það er orðið stökkt.
  2. Leyfið beikoninu að kólna.
  3. Setjið rjómaost, sýrðan rjóma og Kims dipmix í matvinnsluvél og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  4. Hér má einnig blanda saman við rauðlauk, beikoni og osti og láta matvinnsluvélina vinna blönduna í mjúka og slétta ídýfu.
  5. Fyrir þá sem vilja smá stökkt undir tönn er betra að skera rauðlauk og beikon smátt niður og blanda saman við með sleif, ásamt ostinum.
  6. Setjið í skál og skreytið með stökku beikoni, graslauk og osti.
  7. Gott er að bera fram t.d. með salti og pipar, snakki eða góðu kexi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert