Verðlaun fyrir jólalegustu berjakræsingarnar

Hildur Rut Ingimarsdóttir með dóttur sinni þar sem þær eru …
Hildur Rut Ingimarsdóttir með dóttur sinni þar sem þær eru búnar að gera saman jólalegar kræsingar úr berjum. Samsett mynd

Hildur Rut Ingimarsdóttir samfélagsmiðlari og matarbloggari er komin í jólastuð og stendur fyrir girnilegum gjafaleik í samstarfi við uppskriftavefinn Gerum daginn girnilegan. Hér er á ferðinni frumlegur og skemmtilegur leikur sem gengur út á að gera eitthvað jólalegt úr berjum og deila með Hildi og uppskriftavefnum Gerum daginn girnilegan. Það er hægt að leika sér með berin og nýta þetta sem samverustund fjölskyldunnar á aðventunni, ekki skemmir að berin eru holl og góð og stútfull af vítamínum.

Verðlaun fyrir jólalegustu berjakræsingarnar

Vegleg verðlaun eru í boðið fyrir jólalegustu berjakræsingarnar en það eru tvær Ninja CREAMi ísvélar, tveir Ninja blandara ásamt flottum gjafakörfum með berjum frá Driscolls. Ekki amalegt það. 

Svona tekur þú þátt

Það sem þátttakendur þurfa að gera til að vera með er einfaldlega þetta:

  1. Taktu mynd af berja listaverkinu þínu.
  2. Deildu myndinni í story eða á feedið þitt.
  3. Merktu @hildurrutingimars og @gerumdaginngirnilegan, ef þú ert með lokað Instafram þurfum við að fylgja þér til að sjá hana, sendu þá myndina í gegnum skilaboð.

Hildur segir að þetta þurfi alls ekki að vera flókið. „Til dæmis bara skreyta pönnuköku með berjum eða eitthvað annað sem ykkur dettur í hug. Mæli með að leyfa börnunum spreyta sig í þess. Við drögum út nokkra heppna fylgjendur 18. desember,“ segir Hildur og bætir við að mikil tilhlökkun sé í loftinu að sjá kræsingarnar sem verða töfraðar fram.

Sjáið Hildi galdra fram jólalegar kræsingar úr berjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert