Hér er á ferðinni ekta pitsa fyrir rómantískan kvöldverð sem kemur úr smiðju Berglindar Hreiðars uppskriftahöfundar hjá Gotterí og gersemar. Auðvitað má gera þessa pitsu við hvaða tilefni sem er en Berglind var í rómantískum hugleiðingum þegar hún útbjó þessa. Á pitsunni eru perur, brie ostur og karamelluhnetur sem eru fullkomin blanda og þið hreinlega verðið að prófa þessa dásemd, má líka fá sér pítsu á þriðjudögum.
Pítsa fyrir tvo
- 50 g pekanhnetur
- 50 g sykur
- 20 g smjör
- 1 stk. gott pitsadeig að eigin vali
- 5 msk. ricotta ostur
- 2 litlar perur
- ¾ brie ostur
- 4-5 hráskinkusneiðar
- Filippo Berio balsamik gljái, eftir smekk
- Ferskt timian eftir smekk
- Ólífuolía eftir smekk
- Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa karamelluhnetur með því að saxa pekanhneturnar niður og bræða næst sykurinn á pönnu.
- Setjið smjörið síðan á pönnuna áður en sykurinn fer að brenna, hrærið vel saman, lækkið hitann og blandið pekanhnetunum saman við. Leyfið hnetunum að drekka aðeins í sig karamelluna og hrærið vel.
- Dreifið síðan úr hnetublöndunni á bökunarpappír og leyfið að storkna á meðan pizzan er undirbúin.
- Hitið ofninn í 220°C og mótið pitsu sem fyllir nánast út í eina bökunarplötu.
- Smyrjið ricotta osti yfir botninn og skerið perur og brie ost í sneiðar og raðið yfir pitsuna.
- Penslið með smá ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
- Bakið í 17-20 mínútur eða þar til botninn fer að gyllast vel og pizzan er tilbúin.
- Toppið með hráskinku, karamelluhnetum, balsamik gljáa og smá fersku timian.