Þessi dásamlega gulrótasúpa er bæði bragðmikil og nærandi á vel við á köldum vetrardegi í upphafi nýrrar viku. Uppskriftin kemur úr smiðju Sigurveigar Káradóttur matgæðings sem rekur kaffihús í Safnahúsinu en súpuna gerði hún fyrir Sölufélag garðyrkjubænda. Íslenska grænmetið er einstaklega gott í matarmiklar súpur og er upplagt að prófa sig áfram í súpugerðinni.
Gulrótasúpa
- 2-3 msk. ólífuolía
- 2-3 msk. smjör
- 200 g laukur
- 100 g sellerí
- 50 ml hvítvínsedik
- 1 kg gulrætur
- 2 msk. sykur (má sleppa)
- 1-2 tsk. túrmerik
- 2-3 hvítlauksrif
- 1-1 ½ lítri vatn/grænmetiskraftur
- 3-4 lárviðarlauf
- 1 búnt fersk steinselja
Aðferð:
- Skerið lauk og sellerí niður, fremur smátt og setjið í pott ásamt ólífuolíu og ögn af sjávarsalti.
- Leyfið að glæðast um stund.
- Á meðan skulið þið skera gulræturnar fremur smátt og bætið þeim síðan í pottinn ásamt smjörinu og sykri og túrmerki.
- Leyfið að brúnast aðeins í pottinum og taka smá lit áður en þið bætið saman við smátt söxuðum hvítlauknum.
- Hellið næst hvítvínsedikinu í pottinn og leyfið að gufa aðeins upp áður en þið bætið kraftinum saman við.
- Látið malla á meðalhita, þar til grænmetið er fullsoðið.
- Bætið þá steinseljunni saman við, veiðið lárviðarlaufin upp úr og maukið súpuna.
- Setið aftur í pottinn, kryddið til og hitið að nýju.
- Berið fram og njótið.