Kjartan afhjúpar uppskriftina að Sörunni sinni

Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður opninberar uppáhaldsuppskriftina sína að Sörunni.
Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður opninberar uppáhaldsuppskriftina sína að Sörunni. Samsett mynd

Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður og meðstofnandi Omnom er mikill aðdáandi jólanna og elskar að baka fyrir aðventuna. Hann deilir hér með lesendum sinni uppáhaldsuppskrift af Sörunni sinni sen enginn hefur hingað staðist freistinguna að smakka.

„Saran er klárlega drottning jólasmákakana og mig langaði að gera henni hátt undir höfði þegar við í Omnom ákváðu að hafa hana sem aðalhráefnið í ísréttinum okkar. Þessi Sara er saman sett með franskri makkarónuuppskrift sem gerir skelina stökka og mjúka í senn,“ segir Kjartan.

„Við viljum hafa þær aðeins stærri en venjulega en það er ekkert mál að sprauta minni skeljar. Kremið er ríkt með vanillukeim sem spilar fullkomnlega vel með Coffee + Milk súkkulaðinu okkar. Persónulega finnst mér nauðsynlegt að setja extra mikið krem á þær, til að halda jafnvægi við kaffibragðið og ristuðu hnetanna. Til að þess að láta þær aðeins skara fram úr á veisluborðinu mæli ég með að sprauta hóflegu mistri af ætu gullsprey,“ segir Kjartan og bætir við að hinn girnilegi jólaísréttur Omnom verði á boðstólum fram að jólum.

Drottningar Sara Omnom

50 stk. miðað við 3,5 cm stærð

  • Makkarónurskel
  • 150 g möndlumjöl
  • 150  g heslihnetur, mjög fínt malaðar
  • 300  g flórsykur
  • 110 g eggjahvítur (ca 4 eggjahvítur)

Aðferð:

  1. Sigtið saman möndlumjöl og flórsykur í skál og blandið við heslihneturnar.
  2. Hellið eggjahvítunum yfir hnetu-sykursblönduna og blandið saman vel með sleikju og leggið til hliðar með plastfilmu yfir, til að koma í veg fyrir að það þorni.

Ítalskur marens

  • 330 g sykur
  • 110 g vatn
  • 110 g eggjahvítur ( u.þ.b. 4 eggjahvítur)

Aðferð:

  1. Setjið eggjahvíturnar í hrærivélaskál með þeytara.
  2. Setjið sykur og vatn í pott og sjóðið í 118°C.
  3. Þegar hitinn nær 115°C, byrjið að þeyta eggjahvítur á fullu
  4. Hægið aðeins á hraðanum á eggjahvítunum og hellið sírópinu saman við varlega og haldið áfram að þeyta á fullu þar til kólnar, um það bil 10-15 mínútur.
  5. Blandið saman marens við blönduna að ofan, vel og vandlega þar til deigið fer að glansa og rennur af sjálfsdáðum.
  6. Setjið í sprautupoka og sprautið í 3,5 cm hringi. Látið standa í 30 mínútur til að mynda húð
  7. Hitið ofninn í 145°C.
  8. Bakið í 8-10 mínútur, snúið við plötunni og bakið í um það bil 5 mínútur í viðbót
  9. Látið kólna.

Vanillukrem

  1. 160 g eggjarauður ( 8 eggjarauður)
  2. 200 g vatn
  3. 300 g sykur
  4. 1 stk. vanillustangir, fræin skafin úr
  5. 600 g smjör, skorið í bita og við stofuhita
  6. 1 tsk. vanillu dropar
  7. 5 g salt

Aðferð:

  1. Búið til sykursýróp með því að sjóða vatn og sykur saman í pott, slökkvið á suðunni og bætið vanillustöng og fræjum út í. Setjið plastfilmu yfir pottinn og leyfið að standa í 20 mínútur.
  2. Sigtið og geymið vanillustöngina í sykri.
  3. Setjið eggjarauðurnar í hrærivél með þeytara og þeytið.
  4. Hellið sírópinu saman við eggjarauðurnar i mjórri bunu og haldið áfram að þeyta þar til kremið er orðið þykkt.
  5. Bætið smjörinu við smátt og smátt þar til samlagast vel.
  6. Bætið við vanilludropum og salti.
  7. Þeytið í svolitla stund eða þar til kremið verður silkimjúkt.
  8. Smyrjið makkarónuskeljarnar í demantslagaturn, og sparið ekki kremið.
  9. Kælið vel, helst frystið áður en dýft er í bráðið súkkulaðið.
  10. Dýfið ofan í súkkulaðið og leggið á baka og leyfið súkkulaðinu að stífna
  11. Áður en borið er fram má spreyja létt yfir Sörurnar smá gull spreyi til að gera þær extra glæsilegar.

Hjúpur

  • 600 g Coffee + Milk súkkulaði brætt
  • Gullsprey, valfrjálst
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka