Töfrandi jólaleyniskógur bar sigur úr býtum

Það er óhætt að segja að hollustan, hugmyndaflugið og litagleðin …
Það er óhætt að segja að hollustan, hugmyndaflugið og litagleðin hafi ráðið ríkjum í jólaleik Krabbameinsfélagsins sem haldinn var í samstarfi við Banana og Hagkaup. Samsett mynd

 Úrslit voru kynnt í Hagkaup Smáralind um helgina þar sem keppendur settu grænmeti, ávexti og ber í jólalegan og skemmtilegan búning. Sjón er sögu ríkari.

Viðbrögðin við jólaleiknum voru góð og úrslitin voru tilkynnt í Hagkaup Smáralind um helgina. Eins og myndirnar sýna þá er hægt að gera skemmtilegar útfærslur án þess að það sé of tímafrekt eða flókið þó vissulega taki sumar hugmyndirnar ögn lengri tíma en aðrar. Framlögin voru afar fjölbreytt og skemmtileg. Sjón er svo sannarlega sögu ríkari eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.

Úrslitin voru eftirfarandi:

1. sæti: Töfrandi jólaleyniskógur eftir Rūta Vaišvilaitė.

Rūta Vaišvilaitė sigraði í jólaleik Krabbameinsfélagsins, Hagkaups og Banana fyrir …
Rūta Vaišvilaitė sigraði í jólaleik Krabbameinsfélagsins, Hagkaups og Banana fyrir töfrandi jólaleyniskóginn sinn. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Rūta fékk að launum 60.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 40.000 kr. gjafabréf frá Hagkaup.

Það tók Rūtu nokkra daga að finna út hvað hún ætlaði að búa til. Fyrst datt henni í hug að búa til snjókarl en fann ekkert hentugt hvítt grænmeti. Þá varð henni hugsað til íslensku jólasveinanna og ákvað að gera töfrandi jólaleyniskóg.

Þessi töfrandi jólaleyniskógur bar sigur úr býtum í keppni úr …
Þessi töfrandi jólaleyniskógur bar sigur úr býtum í keppni úr smiðju Rūta Vaišvilaitė. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Rūta bjó jólasveinana til með því að skera endana af sítrónu, fæturna gerði hún úr efsta hluta jalapenó, skeggið úr hvítri radísu og nefið skar hún svo út úr nýpu. Jólasveinana setti hún svo saman með tannstönglum. Trén eru úr spergilkáli, fest á nýpu með tannstönglum. Jólahúsið er epli sem búið er að hola að innan, og skera svo út hurð og glugga. Til að búa til jólasnjó setti Rūta hvíta radísu í blandara og þakti botninn á bakkanum með honum. Ofan á raðaði hún svo trjánum, jólasveinunum og húsinu. Þegar þetta var allt komið á bakkann fannst henni samt eitthvað vanta. Tók sér smá pásu og fékk sér mandarínu. Þegar henni varð litið á mandarínuhýðið sá hún að það var fullkominn litur til að setja lokapunktinn á verkið þannig að hún reif börkinn í litla bita, raðaði á bakkann og þá fannst henni þetta komið.

Innihald: Spergilkál, nýpa, epli, sítróna, rautt jalapeno, hvítar radísur og mandarínuhýði.

2. sæti: Litskrúðugur ávaxta- og berjakrans eftir Miglė Milinauskaitė

Miglė Milinauskaitė var í öðru sæti í jólaleik Krabbameinsfélagsins, Hagkaups …
Miglė Milinauskaitė var í öðru sæti í jólaleik Krabbameinsfélagsins, Hagkaups og Banana með sinn litskrúðuga ávaxta- og berjakrans. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Miglė fékk 25.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 25.000 gjafabréf frá Hagkaup.

Þessi litskrúðugi ávaxta- og berjakrans hlaut annað sæti og er …
Þessi litskrúðugi ávaxta- og berjakrans hlaut annað sæti og er úr smiðju Miglė Milinauskaitė. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Mig skar miðhlutann úr vatnsmelónu og notaði glas til að gera hringinn í miðjuna. Síðan byrjaði hún neðst og stakk bláum og grænum vínberjum með tannstönglum í hringinn og berjunum þar á eftir. Efst setti hún svo myntublöð sem hún festi með tannstönglum.

Innihald: Vatnsmelóna, rauð og græn vínber, brómber, trönuber, bláber, jarðarber, rifsber og mynta.

3. sæti: Fallegt og girnilegt ávaxtatré eftir Ingibjörgu Pálsdóttur

Ingibjörg hlaut þriðja sætið í jólaleik Krabbameinsfélagsins, Hagkaups og Banana …
Ingibjörg hlaut þriðja sætið í jólaleik Krabbameinsfélagsins, Hagkaups og Banana með sínu fallega ávaxtajólatré þar sem jarðarber eru í forgrunni. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Ingibjörg fékk 15.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 15.000 gjafabréf frá Hagkaup.

Þriðja sætið hlaut þetta fallega jarðarberjajólatré sem allt er búið …
Þriðja sætið hlaut þetta fallega jarðarberjajólatré sem allt er búið til úr ávöxtum og kemur úr smiðju Ingibjargar Pálsdóttur. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Ingibjörg skar endana af epli til að nota sem stoð, valdi stærstu gulrót sem hún fann og reyndi að hafa hana sem líkasta keilu og festi gulrótina við eplið með tannstönglum. Jarðaberin eru svo fest á með hálfum tannstönglum. Síðan prentaði hún út stjörnu og notaði sem skapalón til að skera út stjörnu úr rófu sem hún festi á topp trésins.

Innihald: Gulrót, epli, jarðaber, mynta og rófa.

Einnig voru veitt aukaverðlaun frá Lemon fyrir þessar skemmtilegu útfærslur:

Ramona Pittroff gerði þessa skemmtilegu útfærslu af Trölla í jólabúning.
Ramona Pittroff gerði þessa skemmtilegu útfærslu af Trölla í jólabúning. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Ramona Pittroff gerði þessa skemmtilegu útfærslu af Trölla.

Innihald og lýsing: Jarðaber (í húfuna), blómkál (í húfukappann og dúsk), gul paprika (augu), trönuber (augasteinn), græn vínber (andlit), jöklasalat (undirlag andlits), gúrkuhýði (andlistdrættir og augnabrúnir) og tannstönglar til að festa augasteina.

Nína Margrét Jónsdóttir á heiður af þessari Vegan-vöggu á jólanótt.
Nína Margrét Jónsdóttir á heiður af þessari Vegan-vöggu á jólanótt. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Nína Margrét Jónsdóttir - Vegan-vagga á jólanótt

„Þá nýfæddur Jesú í plómunni lá,
á jólunum fyrstu var margt grænmeti að sjá.
Þau hámuðu í sig frá fati til fats,
því hann var nú fæddur í líkingu mats".

Innihaldslýsing: Tómatar, regnbogagulrætur, rófur, sellerí, paprika, klettasalat, salat, spergilkál, blómkál, sótróna, plóma, vínber, spírur, brómber og ólífa.

Jólalegur kransinn með appelsínuskálum sem kemur einnig úr smiðju Miglė …
Jólalegur kransinn með appelsínuskálum sem kemur einnig úr smiðju Miglė Milinauskaitė. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen

Miglė Milinauskaitė, sem lenti í 2. sæti, skilaði einnig inn þessum skemmtilegu appelsínuskálum.

Innihaldslýsing: Appelsínur, melónur( vatnsmelóna og cantaloupe), mandarínur, bláber, kókosflögur,rósmarín og heimagert hunang.

Sigríður og Brimar voru með þessa skemmtilegu útfærslu þar sem …
Sigríður og Brimar voru með þessa skemmtilegu útfærslu þar sem hreindýrið Rúdólf með rauða trýnið nýtur sín í jólaávaxtalandi. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen
Jasur Vohidov var með þessar litríku og flottu útfærslur af …
Jasur Vohidov var með þessar litríku og flottu útfærslur af jólakrásum úr ávöxtum og grænmeti. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen
Ljósmynd/Sigurður Möller Sivertsen

Dómnefnd skipuðu: 

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, formaður dómnefndar.

Eva Ruza, skemmtikraftur.

Sjöfn Þórðardóttir, umsjónarmaður matarvefs Mbl.is.

Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu.

Dómnefndina skipuðu Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu, Sjöfn Þórðardóttir, …
Dómnefndina skipuðu Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu, Sjöfn Þórðardóttir, umsjónarmaður Matarvefs mbl.is, Eva Ruza, skemmtikraftur og Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups sem var einnig formaður dómnefndar. Ljósmynd/Sigurður Möller Sívertsen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert