Hér er á ferðinni jólakokteill sem kemur úr smiðju Hildar Rutar Ingimarsdóttur hjá Trendnet. Hún segir að þetta sé nýjasti uppáhalds kokteillinn sinn og hún hafi kolfallið fyrir bragðinu þegar hún smakkaði drykkinn í fyrsta skipti. Kokteillinn er bæði bragðgóður og jólalegur með góðri froðu. Cointreu, möndlulíkjör, trönuberjasafi, sykursíróp, límóna og eggjahvíta eru innihaldsefnin sem til þarf. Hátíðlegt er að skála í þessum drykk yfir hátíðirnar sem Hildur kallar Jóla-Cosmo.
Rauður jólakokteill
Fyrir 2 í hanastélsglös
- 10 cl trönuberjasafi
- 5 cl Cointreau
- 5 cl Amaretto Bols Amsterdam
- 4 cl sykursíróp (uppskrift fyrir neðan)
- 4 cl safi úr límónu
- 1 egg (eggjahvíta)
- 2 kirsuber úr krukku
Aðferð:
- Hellið trönuberjasafa, Countreau, Amaretto, sykursírópi, límónusafa og eggjahvítu í hristara og hristið í 10-15 sekúndur.
- Bætið klökum saman við og hristið aftur í 10-15 sekúndur.
- Hellið í falleg glös í gegnum sigti.
- Þræðið kirsuber á pinna og skreytið glasið. Njótið vel.
Sykursíróp
Aðferð:
- Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp.
- Kælið, tekur nokkrar mínútur.
- Hildur hellir sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymir í ísskáp.
- Sykursírópið geymist í um einn mánuð.