Þórunn Högna stílisti er þekkt fyrir að fara alla leið þegar veislu skal gjöra. Hún elskar að skreyta og allra skemmtilegasta finnst henni að skreyta jóla- og áramótaborð. Þórunn er fagurkeri fram í fingurgóma og tjaldar öllu til þegar áramótin eru annars vegar. Í ár er hún með Chanel-þema en Þórunn heldur mikið um Chanel.
„Hvítt, silfur og svart finnst mér alltaf vera hátíðlegt og sérstaklega um áramótin,“ segir Þórunn. Nú ákvað ég að vera með Chanel þema og skreyta hátt og lágt kringum hátíðarborðið. Ég blanda saman allskonar skrauti bæði gömlu og nýju, stjörnur finnst mér ávallt vera fallegar á áramótaborðinu og leyfi þeim því að vera með,“ segir Þórunn dreymin á svip.
Þórunni finnst gaman er að blanda saman allskonar leirtaui og nota svo pappadiska með. Til dæmis eins og fyrir forréttinn. Síða setti ég þessar lerkigreinar upp fyrir jólin, það er svo gaman að leika sér með ýmis konar skraut sem hægt að hengja í þær og búa til áramótaþema í stað jólaþema,“ segir Þórunn sem er tilbúin fyrir áramótapartíið á morgun.