Við hjónin vitum fátt betra en að töfra fram sælkerakræsingar um hátíðirnar og í miklu uppáhaldi er villibráð. Við höfum skapa okkur þá hefð að vera með humar og hreindýralundir á nýárskvöld með ljúffengu meðlæti sem flýgur með bragðlaukana á hæstu hæðir. Humarinn stendur ávallt fyrir sínu og hann grillum við í hvítlauks- og steinseljusmjöri sem bráðnar í munni. Hreindýralundirnar eru sannkallaður veislumatur, meyrar og silkimjúkar. Ég ber hreindýralundirnar fram með dýrðlegri villibráðarsósu, rósmarín- og einiberjasósu, sem parast á fullkomnaðan hátt með hreindýrinu. Síðan er ég með möndlukartöflur, franska útgáfu af kartöflum, niðursoðnar perur með hrútaberjasultu, rósakál í balsamic og hunangsgljáðar regnbogagulrætur. Ég deili hér með ykkur uppskriftinni að hreindýralundunum og villibráðarsósunni og eldunin á lundunum skiptir sköpun.
Dýrðlegt tvist að bjóða upp á grillaðan humar og hreindýralundir í aðalrétt. Haf og hagi í hátíðarbúning.
Ljósmynd/Sjöfn
Hreindýralundir og rósmarín- og einiberjavillibráðarsósu
Hreindýralundir
- 1kghreindýralundir
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Krydda til með salt og pipar eftir smekk
- Steikja lundirnar í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
- Setjið hreindýralundirnar beint inn í ofn við 180°C í um það bil 8 mínútur.
- Kjarnhitinn á að vera um 48°C.
Rósmarín einiberjasósa
- 2 msk. olía
- 3 stk. skalotlaukur
- 4 rif hvítlaukur
- 10 einiber
- 1 stk. stjörnuanís
- 2 greinar rósmarín
- 3 msk. síróp
- 3 msk. balsamik edik
- 800 ml nautasoð í fernu/eða hreindýrasoð (fæst í Melabúðinni)
- 80 g smjör
- 1-2 msk. rifsberja eða hrútaberjasulta frá Skriðuklaustri
- 1 peli rjómi eða eftir smekk
Aðferð:
- Skerið laukana gróft niður.
- Hitið pott með olíu í og steikið laukinn við miðlungs hita þar til hann verður glær. Bætið einiberjum, stjörnuanís og rósmarín út í og steikið aðeins áfram.
- Bætið loks sírópi og ediki út í og leyfið því að karamellast aðeins og sjóða saman þar til það þykkist.
- Bætið nautasoðinu/hreindýrasoðinu út í og sjóðið niður um helming eða þar til hún er orðin þykk.
- Sigtið sósuna og pískið smjörinu saman við hana.
- Hægt að bæta rjóma og/eða sultu út í til að breyta sósunni algjörlega.
- Berið fram með ljúffengu meðlæti sem parast vel með hreindýralundunum.
Hátíðarbragur er yfir borðhaldinu á nýárskvöld líkt og á gamlárskvöld.
Ljósmynd/Sjöfn