Á nýju ári er svo ljúffengt að njóta frískandi rétta sem koma bragðlaukunum á flug. Kristjana Steingrímsdóttir heilsumarkþjálfi, ávallt kölluð Jana, gerði þennan dýrðlega og nýstárlega forrétt á dögunum sem hitti svo sannarlega í mark. Hér er á ferðinni ananas carpaccio með basil, granateplafræjum, anís, chiliflögum og sítrónuolíu. Vel er hægt að mæla með þessum ljúffenga forrétt og upplagt að bjóða upp á þennan þegar jólin verða kvödd. Hægt er að fylgjast með Jönu í eldhúsinu á Instgram síðunni hennar hér.
Nýstárlegt og skemmtilegt.
Ljósmynd/Jana
Ananas carpaccio að hætti Jönu
- 1 ferskur ananas
- ½ límónusafi og rifinn börkur
- ½ box af fersku basil, saxað gróft
- 3-4 msk. granateplafræ (má líka nota bláber eða vínber)
- 3 msk. pistasíur, gróft saxaðar
- 1/6 ferskur chili skorinn í þunnar sneiðar eða smá af þurrkuðum chiliflögur
- 2-3 msk. sítrónuolía
- 2-3 anís stjörnur
- Örlítið gróft sjávarsalti
Aðferð:
- Skerið ysta lagið af ananasinum og skerið svo í þunnar sneiðar.
- Raðið ananas sneiðunum á stóran disk.
- Skreytið svo með restinni með hráefninu með því í að dreifa því fallega yfir ananas-sneiðarnar.
- Berið fram og njótið.