Gúrkur eru hollar og góðar og fullkomnar sem millimál. Það er hægt að nota gúrkur í svo margt og svo er líka hagkvæmt að kaupa inn gúrkur. Þær eru góðar í nestisboxið, í heilsudrykkinn, ofan á frækexið, í salatið, sem meðlæti með alls konar réttum og kræsingum.
Gúrkur búa yfir þessum eiginleikum sem eru góðir fyrir líkama og sál:
- Gúrkur eru vatnslosandi og geta því minnkað bjúg og bólgur.
- Gúrkur eru hitaeiningasnauðar, einungis 12 hitaeiningar í 100 g.
- Gúrkur innihalda silica sem er afar gott fyrir húð og neglur.
- Gúrkur eru góðar við andremmu og hreinsandi fyrir tannholdið.
- Gúrkur innihalda flest af þeim vítamínum sem við þurfum daglega.
- Gúrkur eru frábært millimál.
Gúrka með humarsalati og kotasælu
Vert er að láta eina uppskrift fylgja með þar sem gúrkan er í aðalhlutverki. Kemur hún úr smiðju Ylfu Helgadóttur og er gerð fyrir uppskriftavef Sölufélags garðyrkjumanna. Heimildir um eiginleika gúrkunnar er einmitt að finna þar. Hér er á ferðinni uppskrift að gúrku með humarsalati og kotasælu sem er fullkomin blanda og góð næring.
Gúrka með humarsalati og kotasælu
- 1 gúrka
- 100 g humar
- 3 msk. kotasæla
- 2 msk. majónes
- 1-2 msk. saxaðar kryddjurtir t.d. kóríander eða graslaukur
- Hnífsoddur salt og smá pipar
- Sítrónuraspur af einni sítrónu
Aðferð:
- Skerið gúrkuna langsum og hreinsið kjarnann út. Best er að nota skeið við það.
- Skerið humarinn smátt og setjið í skál ásamt kotasælu, majónesi, salti og pipar, kryddjurtum og sítrónuraspi.
- Raðið salatinu í miðja gúrkuna þar sem kjarninn var áður og setjið gúrkuna inn í ofn og grillið eða grillið á grilli.