Eggjakaka með spínati og avókadó

Þessi eggkaka er hin girnilegasta, með avókadó, spínati og fleira …
Þessi eggkaka er hin girnilegasta, með avókadó, spínati og fleira góðgæti. Ljósmynd/Gott í matinn

Fátt er betra en að fá góða eggjaköku í morgunverð og það má breyta meðlætinu eftir hentugleika og líka eftir því hvað er til í ísskápnum. Þessa uppskrift er að finna á uppskriftasíðunni Gott í matinn og hún er bæði einföld og þægileg þegar þig langar í léttan morgunverð eða hádegisverð. Auðvitað má setja hvaða fyllingu sem er á milli eftir smekk hvers og eins.

Eggjakaka með spínati og avókadó

Fyrir 1

  • 3 stk. egg
  • 25 g skinka
  • 25 g piparostur
  • 1 dl léttmjólk
  • Góðostur/Brauðostur frá MS eftir smekk
  • Spínat eftir smekk
  • 1 stk. avókadó

Aðferð:

  1. Blandið innihaldsefnum saman og steikið við meðalháan hita.
  2. Setjið á disk og raðið áleggi ofan á annan helminginn og lokið svo kökunni.
  3. Njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert