Nýr djús í boði Hildar

Nýr djús verður í boðið á Lemon í janúar sem …
Nýr djús verður í boðið á Lemon í janúar sem kemur úr smiðju Hildar Ómarsdóttur uppskriftahöfundar og ber heitið Beetlejuice. Ljósmynd/Hildur Ómars

Beetlejuice er djús sem verður í boði á Lemon í janúar. Djúsinn er unninn í samvinnu við Hildi Ómarsdóttur uppskriftahöfund sem heldur úti uppskriftasíðunni hilduromars.is  

Þessi djús er ekki nýr af nálinni hjá Hildi, en hún hefur drukkið þennan djús í mörg ár og hann hefur verið einn vinsælasti djúsinn á uppskriftasíðunni hennar.  „Djúsinn er rosalega hollur, fullur af vítamínum og járni. Hann hefur sérstaklega verið vinsæll hjá ófrískum konum þar sem hann er mjög járnríkur,“ segir Hildur.

Hefur drukkið safa í mörg ár

Hildur var alin upp sem grænmetisæta en varð vegan á fullorðinsárum. Hún hefur mikinn áhuga á næringu og á síðunni hennar má finna margar frábærar uppskriftir. Hildur hefur drukkið safa í mörg ár. „Ég drakk til dæmis mikið af þessum safa þegar ég var ófrísk og þannig tókst mér að koma í veg fyrir járnskort,“ segir Hildur.

„Mér finnst frábært að kaupa safa hjá Lemon og var það í raun upphaf samstarfs okkar, að ég var ánægður viðskiptavinur. Nýju safapakkarnir sem þau bjóða upp á, Detoxpakki Tobbu og selleríhreinsun Tobbu hafa komið sér vel þegar ég vil spara tíma og auðvelda mér lífið en djús er hluti af minni daglegu rútínu,“ bætir Hildur við.

Járnrík orkubomba stútfull af vítamínum

Beetlejuice, er járnrík orkubomba stútfullur af vítamínum  og hollustu, einmitt það sem kroppurinn  þarfnast núna. Hann er orðinn fastur liður í morgunrútínunni hjá mér þessa dagana. Við elskum að vinna með Hildi og frábært að fá hana í hóp þeirra frábæru einstaklinga sem við höfum unnið með undanfarin ár,“ segir Unnur Guðríður Indriðadóttir, markaðsstjóri Lemon.

Djúsinn hennar Hildar er stúttfullur af járni og hefur notið …
Djúsinn hennar Hildar er stúttfullur af járni og hefur notið mikilla vinsælda meðal fylgjenda Hildar gegnum árin.

Hildur opinberar hér uppskriftina að djúsinum fyrir þá sem vilja gera hann heima.

Beetlejuice

  • ½ rauðrófa
  • 1 dl frosin hindber
  • 1 dl frosið mangó
  • ½ límóna
  • Engifer eftir smekk
  • Klakar eftir smekk
  • Epli eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið hindber, mangó, og klaka í blandara.
  2. Setjið rauðrófu, límónu, engifer og epli í safapressu og setjið síðan í blandarann og mixið saman. 
  3. Úr verður fallegur og góður drykkur.
  4. Hellið í glas og njótið hvers sopa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert