Þetta rjómapasta með risarækjum er afar ljúffengt og tekur skamma stund að útbúa og er sannkölluð veislumáltíð. Gígja S. Guðjónsdóttir uppskriftahöfundur á heiðurinn af þessari uppskrift en hún kann svo sannarlega að útbúa veislumat sem gleður alla matgæðinga. Þessa uppskrift gerði hún fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.
Rjómapasta með risarækjum og hvítlauk
Fyrir 4
- 500 g risarækjur (afþíðið)
- 400 g pasta (spaghettí eða tagliatelle)
- 1 msk. olía
- 6 stk. hvítlauksrif
- 2 msk. ósaltað smjör
- Salt og pipar eftir smekk
- ½ bolli hvítvín
- 1 ½ bolli rjómi eða matreiðslurjómi
- ½ rifinn parmesanostur
- Smátt söxuð steinselja
Aðferð:
- Sjóðið pastað í potti eftir leiðbeiningum á pakkanum.
- Hitið olíu á pönnu og steikið rækjurnar ásamt salti og pipar í um tvær mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru orðnar bleikar en þá eru þær teknar af pönnunni.
- Setjið smjörið í olíuna ásamt hvítlauknum og látið malla í smá stund á vægum hita.
- Setjið næst rjómann og hvítvínið á pönnuna og látið suðuna koma upp.
- Þegar suðan er komin upp bætið þá rifnum parmesanosti út í.
- Þegar rjóminn hefur þykknað aðeins bætið þá rækjunum aftur út á pönnuna og stráið steinselju yfir ásamt salti og pipar eftir smekk.
- Í lokin skuluð þið setja pasta á diskana og síðan rjóma og er rækjublöndunni svo hellt yfir pastað.
- Fallegt er að skreyta diskana með steinselju og rifnum parmesanosti.