Brúnkur með mascarpone súkkulaðikremi

Brúnkurnar hennar Berglindi Hreiðars eru girnilegar og erfitt er að …
Brúnkurnar hennar Berglindi Hreiðars eru girnilegar og erfitt er að standast þær. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Fyrsta kaka ársins á blogginu hennar Berglindar Hreiðars, hjá Gotterí og gersemareru brúnkur með mascarpone með súkkulaðikremi. Berglind elskar brúnkur og til að toppa þær útbjó hún syndsamlega gott súkkulaðikrem með mascarpone. Ef ykkur langar að slá í gegn í næsta kaffiboði er lag að prófa baka þessar brúnkur.

Kremið er ljúffengt og gott og jarðarberin passa vel með …
Kremið er ljúffengt og gott og jarðarberin passa vel með kökunni. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Brúnkur með mascarpone súkkulaðikremi

Fyrir 12-15

  • Brúnkur, kakan
  • 150 g smjör við stofuhita
  • 140 g sykur
  • 90 g púðursykur
  • 2 egg
  • 2 msk. uppáhellt kaffi
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði (brætt)
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 110 g hveiti

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til ferkantað kökuform (um 20 x 20 cm). Klæðið það að innan með bökunarpappír og spreyið það að innan með matarolíuspreyi.
  2. Þeytið síðan saman smjör og báðar tegundir af sykri þar til létt og ljós blanda myndast.
  3. Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum, hrærið vel og skafið niður á milli.
  4. Næst fer brætt Síríus suðusúkkulaði ásamt uppáhelltu kaffi í blönduna og blandið varlega saman á meðan þið eruð að hella því saman við og þeytið síðan vel.
  5. Að lokum má blanda þurrefnunum saman í skál og setja saman við í nokkrum skömmtum og blanda vel.
  6. Bakið í um 35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á, ekki blautu deigi.
  7. Kælið kökuna alveg og takið upp úr forminu áður en þið setjið kremið á.
  8. Mascarpone súkkulaðikrem og skreyting
  9. 250 g mascarpone ostur
  10. 80 g flórsykur
  11. 20 g Síríus bökunarkakó
  12. 240 ml rjómi
  13. 250 g jarðarber
  14. 100 g hindber
  15. Ein lúka Síríus karamellukurl
  16. Blandið saman mascarpone osti, flórsykri og Síríus bökunarkakói og þeytið vel í hrærivélinni (með þeytaranum).
  17. Hellið rjómanum síðan varlega saman við og þeytið stutta stund áfram.
  18. Um leið og áferðin minnir á smjörkrem má slökkva á hrærivélinni (þetta tekur stutta stund) og smyrja kreminu yfir kælda kökuna.
  19. Toppið síðan með niðurskornum jarðarberjum, hindberjum og Síríus karamellukurli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert