Hér er á ferðinni uppskrift af „Smashburger taco“ að hætti Helgu Möggu heilsumarkþjálfa og samfélagsmiðlastjörnu.
Þetta er sá réttur sem hefur verið sá vinsælasti á samfélagsmiðlum, sérstaklega á TikTok, undanfarna mánuði og margar samfélagsmiðlastjörnur hafa deilt sinni útgáfu af þessum rétti sem kallast enska heitinu „Smashburgar taco“. Hann er líka til í „Big Mac“ útgáfu sem er stæling af Big Mac hamborgaranum fræga sem fæst á McDonalds.
„Ég var búin að vera lengi á leiðinni að prófa þessa uppskrift sem ég sá á TikTok. Hér er hún komin í macros vænan búning. Ég nota nautahakk í uppskriftinni en það er einnig hægt að nota kalkúnahakk sem er fituminna kjöt,“ segir Helga Magga.
Þetta er réttur sem steinliggur fyrir alla fjölskylduna á laugardagskvöldi þegar einfaldleikinn verður fyrir valinu.
Ljósmynd/Helga Magga
Smashburger taco
Fyrir 3-4
- 8 litlar tortillur
- 500 g nautahakk
- Jöklasalat (iceberg)
- Laukur
- Súrar gúrkur niðurskornar
- Ostsneiðar 17%
Aðferð:
- Takið til 8 litlar hringlaga tortillur og skiptið 500 g af nautahakkinu í 8 parta, hvert um það bil 62/63 g.
- Skerið fínt niður kálið, laukinn og súru gúrkurnar og setjið til hliðar.
- Kryddið nautahakkið með salti og pipar og dreifið á hverja tortillu, reynið að láta það ná alveg út í endana.
- Steikið svo tortillurnar í um 3-4 mínútur með hakkið niður. Snúið við, setjið ostsneið ofan á og hitið tortilluna aðeins áfram, til dæmis á annarri pönnu.
- Það er sniðugt að geyma steiktu tortillurnar inni í heitum ofni á meðan restin er steikt.
- Berið fram með káli, lauk, súrum gúrkum og sósunni sem minnir á Big Mac sósuna góðu (uppskrift hér fyrir neðan).
Big Mac sósan
- 1 dós sýrður rjómi 180 g
- 2 msk. sætt sinnep (gult) 30 g
- 2 msk. tómatsósa 30 g
- 50 súrar gúrkur fínt niðurskornar
- Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
Aðferð:
- Blandið öllum innihaldsefnunum í sósuna saman í skál.
- Hrærið vel og geymið í kæli þar bera á sósuna fram.