Hildur Ómars á heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni sem er vegan vænn. Allir réttirnir koma úr smiðju Hildar og gaman er að geta þess að Hildur er alin upp sem grænmetisæta og varð vegan á fullorðinsárum.
Hildur hefur ástríðu fyrir að útbúa góðan mat sem gleður augað sem og líkamann. Hún er tveggja barna móðir, uppskriftasmiður og lærður umhverfis-og byggingarverkfræðingur sem heldur úti uppskriftasíðunni Hildur Ómars þar sem er að finna girnilegar uppskriftir og fróðleiksmola um mat.
„Börnin mín alast upp sem grænkerar og mitt markmið hefur lengi verið að sýna gott fordæmi fyrir aðra foreldra um að börn geti svo sannarlega alist upp án dýraafurða,“ segir Hildur.
Hér gefur að líta matseðilinn fyrir vikuna sem er einstaklega girnilegur og á vel við þessa síðustu viku janúarmánaðar.
Mánudagur – Linsubaunasúpa Hildar
„Ofureinföld linsusúpa sem kemur öllum á óvart.“
Þriðjudagur – Hversdagslegt ofnbakað tófú
„Hversdagslegt tófú í ofni með kínóa og jógúrt dillsósu sem við fjölskyldan elskum að njóta.“
Miðvikudagur – Matarmikið salat með sólþurrkuðum tómötum
„Við fjölskyldan erum hrifin af því að borða matarmikil og góð salöt sem bragð er af. Hér er eitt salat með sólþurrkuðum tómötum, ólífum og engifer-tahinidressingu sem nýtur mikilla vinsælda.“
Fimmtudagur – Asískt salat með tófú
„Fimmtudagskvöld eru góð salatkvöld og þá er lag að vera með asískt salat með tófú sem bragðast alveg dásamlega vel.“
Föstudagur - Ofnbakað grænmeti með kínóasalati og heimagerðu pestó
„Okkur finnst ofnbakað grænmeti hreint sælgæti og föstudagar eru sparidagar. Við erum hrifin af þessum rétti og gerum hann oft. Þetta er grænmeti í ofni með kínóasalati og heimagerðu pestó.“
Laugardagur – Vegan burrito með grænmeti
„Laugardagsveislan er vegan burrito með steiktu grænmeti, refried beans og tómatsalsa.“
Sunnudagur – Kjúklingabaunir í tikkamasala sósu
„Kjúklingabaunir í tikkamasala sósu eru einstaklega góðar og þetta er góður sunnudagsréttur með indversku ívafi sem allir elska.“