Eva Laufey Kjaran markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups er mikill sælkeri og elskar fátt meira en að töfra fram girnilegar kræsingar. Nú er þorrinn er handan við hornið og Eva Laufey gerði sér lítið fyrir og er búin að nútímavæða þorrabakkann.
Nútímalegi þorrabakkinn hennar Evu Laufeyjar er ómótstæðilega girnilegur með sælkerakræsingum. Á bakkanum er hið klassíski þorramatur ásamt ekta íslenskum lummum sem steinliggja með þorrakræsingunum og dýrindis ostasalat. Girnileg rófustappa og kartöflumús prýða einnig bakkann. Eva Laufey skreytir síðan bakkann með salatblöðum og ferskri steinselju sem settur punktinn yfir i-ið. Ef ykkur langar að slá í gegn á næsta þorrablóti eða koma bóndanum á óvart á bóndadaginn þá er vel hægt að mæla með þessum nútímalega þorrabakka, hann á eftir að slá í gegn.