Stella Birgisdóttir innanhússhönnuður og annar eigandi Béton Studio ásamt Hildi Árnadóttur arkitekt hannaði þetta glæsilega eldhús fyrir hjónin Hrafnhildi og Bjarka sem búa við Litlakrika í Mosfellsbæ. Þegar kemur að því að hanna eldhús finnst Stellu skipta miklu máli að flétta saman fagurfræðinni og notagildinu og aðlaga rýmið að þörfum eigenda.
„Eldhúsið var hannað 2022 í samráði við húsráðendur. Hrafnhildur og Bjarki vildu eldhús þar sem vinnuplássið væri í forgrunni og hugað væri að þeirra þörfum. Eyjan stækkar rýmið til muna og nýtist vel fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Þegar kom að efnisvali og lit var svartur viður, ryðfrítt stál og keramikflísar í fyrsta sæti. Efniviðurinn sem varð fyrir valinu, stálið, keramikið og viðurinn flæða afar vel saman og úr varð falleg og heildstæð mynd,“ segir Stella.