Soðin reykt eða söltuð nautatunga er sannkallaður veislumatur og ein af mínu uppáhalds. Allra best finnst mér að nota hana sem lúxus álegg á blinis eða nýbakaðar flatkökur með piparrótarsósu. Þegar boðið er í þorrablót er upplagt að bjóða upp á þessa veislumáltíð fyrir þá vandlátu. Þeir sem ekki borða súrsaðan þorramat geta þá gædd sér á nautatungu með piparrótarsósu í staðinn. Þá er hægt að velja að vera með flatkökur, blinis, ristað brauð eða snittubrauð sem er skorið og borið fram á fallegan hátt.
Nautatunga er skorin í þunnar sneiðar þegar búið er að sjóða hana og kæla.
Ljósmynd/Sjöfn
Piparrótarsósan er ótrúlega bragðgóð og það þarf einungis tvö hráefni í sósuna.
Ljósmynd/Sjöfn
Nautatunga borin fram með piparrótarsósu
- 600 -800 g nautatunga, reykt eða söltuð
- 2 lárviðarlauf
- Nokkrar ferskar timian greinar
- Kalt vatn
Aðferð:
- Byrjið á því að skola tunguna úr köldu vatni og setjið hana í pott með nokkrum timian greinar, lárviðarlaufum og kryddið aðeins með ferskum, nýmöluðum pipar.
- Bætið síðan við köldu vatni og látið fljóta yfir tunguna.
- Hitið að suðu og látið malla undir loki við mjög vægan hita í um það bil tvo tíma, ef hún er þyngri þá lengja suðutímann.
- Þið getið prófa hvort tungan er fullsoðin með því að stinga prjóni í hana; ef hann rennur í gegnum hana nánast eins og smjör er hún tilbúin.
- Takið síðan tunguna upp úr vatninu/soðinu látið hana kólna í um það bil tíu til fimmtán mínútur eða lengur þar til hægt var að taka á þeim og flá þær.
- Skinnið getur verið örlítið fast á hliðunum og þar sem það er þynnst og þá þarf stundum hníf til að losa það en þar sem það er þykkara er yfirleitt hægt að fletta því af.
- Skerið síðan tunguna í þunnar sneiðar og raðið fallega á disk.
- Berið nautatunguna fram með piparrótarsósu, sjá uppskrift hér fyrir neðan, ásamt blinis og/eða ristuðu brauði að eigin vali skorið í þríhyrninga og/eða nýbökuðum flatkökum að betri gerðinni.
Piparrótarsósa
- 1 dós sýrður rjómi 18%
- 1 pk. piparrót í maukformi
Aðferð:
- Byrjið á því að hræra sýrða rjómann þar til hann verður silkimjúkur.
- Setjið síðan piparrótina út í sýrða rjómann og hrærið vel með gaffli þar til sósan verður kekkjalaus með fallegri áferð.
- Berið fram með nautatungunni.
Með nautatungunni er upplagt að bjóða upp á blinis, flatkökur eða ristað brauð.
Samsett mynd