Þjóðverjar eru mikið fyrir alls konar salöt og eru kartöflu salötin engin undanþága þar á og uppskriftirnar óteljandi. Hérna kemur ein þeirra sem Ingunn Mjöll uppskriftahöfundur deildi á uppskriftasíðu sinni Íslandsmjöll í byrjun febrúar. Þetta er frábært meðlæti með steikum, pylsum, fiskréttum og því sem ykkur finnst gott.
Þýsk ættað kartöflusalat
- 500 g kartöflur soðnar og flysjaðar
- 1 laukur, fínt saxaður
- Nokkrar súrar gúrkur, fínt saxaðar
- 200 g gúrku relish
- 250 ml majónes
- 2-3 msk. Dijon sinnep
- 1-2 msk. edik
- Svartur pipar, eftir smekk
Aðferð:
- Skerið kartöflurnar í hæfilega stóra bita.
- Hrærið saman majónes, sinnep og ediki.
- Bætið við lauk, súrum gúrkum, gúrku relish og loks kartöflubitunum.
- Kryddið til með pipar.
- Berið fram með því sem hugurinn girnist sem og matarhjartað.