Í síðustu viku var kynnt til sögunnar nýtt íslenskt romm, Stormur, frá Og natura á barnum Veður á Klapparstíg. Um er að ræða veðrað íslenskt romm í tveimur bragðtegundum, annars vegar klassískt þriggja ára tunnuþroskað romm í anda Karíbahafsins og hins vegar hátíðarútgáfu þar sem Stormur er kryddaður með appelsínu, púðursykri, kanil, anís, kardimommum, vanillu og pipar sem gefur kröftuga en hátíðlega stemningu.
Og natura er stýrt af Ragnheiði Axel og Liljari Má sem hafa gert garðinn frægan í ginheiminum með Wild Icelandic Gin-línunni en þegar sumarbústaður Ragnheiðar sprakk í óveðri kom innblástur til að stíga inn í rommheiminn með Storm í hendi.
Auglýsingastofan PiparTBWA var fengið í samstarf til að hanna útlit Storms, farnar voru óhefðbundnar leiðir í formum og prenti þar sem meðal annars á bakhlið miðans er áprentuð grafík sem skapar öldusjó rommsins þegar horft er inn í flöskuna.
Margmenni og fjör var á viðburðinum en bornir voru fram rommkokteilar sem hlýjuðu gestum í febrúargaddinum. Meðal gesta voru meðal annars Jón Þór Gunnarsson forstjóri Kaldalóns, Viktor Weisshappell Vilhjálmsson ofurgrafíker og teymið hans á nýju hönnunarstofunni Strik, Sveinn Steinar Benediktsson bruggari hjá Grugg og Makk og ostadrottningin Eirný Sigurðardóttir.