Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni eins og sagt. Í tilefni öskudagsins ákvað Helgi Rafn, sonur Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur þjálfara íslenska kokkalandsliðsins, að vera kokkur og ekki bara kokkur heldur verðlaunakokkur. Helgi Rafn er aðeins þriggja ára gamall og þegar farinn að taka þátt í eldhúsinu og lagaði dýrindis hafragraut í morgunmat. Snædís og lið hennar hlutu tvenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum í matreiðslu í ár og brons fyrir heildarframmistöðuna.
„Hjartað mitt vildi vera kokkur á öskudaginn. Ágústa frænka gaf honum medalíu og honum fannst ekkert sjálfsagðra en að setja hana á sig þar sem hann vildi vera eins og mamma sín,“ segir Snædís og bætir við að síðan hafi hann þurft prófa að elda hafragraut í búningnum. Helgi Rafn er svo sannarlega stoltur af mömmu sinni sem er fyrirmynd hans í tilefni dagsins.
Helgi Rafn vildi glaður gefa lesendum matarvefsins uppskriftina að hafragrautnum sínum og hér er hún komin. Sjáið myndbandið á Instagram-síðu Snædísar af Helga laga hafragraut í kokkabúninginum sínum, hvað er krúttlegra en þetta í tilefni dagsins?
Hafragrautur ala Helgi Rafn
Aðferð: