Perutertur voru hér áður fyrr í öllum barnaafmælum og mörgum fermingarveislum. Þær hurfu síðan á braut en eru að koma aftur sterkar inn. Það sem einkennir peruterturnar er að botnarnir voru mjúkir og gegnblautir. Albert Eiríksson, sælkeri og matarbloggari, fékk nostalgíukast þegar hann rakst á eina slíka á fésbókinni og fékk uppskriftina og deildi með lesendum sínum á heimasíðu sinni Albert eldar.
„Þegar ég sá á fésbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið,“ segir Albert.
„Það er ekki lyftiduft í uppskriftinni minni en það má örugglega bæta við 1 teskeið ef fólk vill,” segir uppskriftahöfundurinn Borghildur Jóna á Stöðvarfirði.
Vert er að láta þess getið að það er til Hið íslenska Perutertufélag á fésbókinni og er gaman að skoða síðu þess og uppskriftirnar sem þar er að finna.
Peruterta
Botnarnir
Aðferð:
Súkkulaðikrem
Aðferð: