Mezze rigatoni bolognese í rjómalagaðri pestósósu

Hér er á ferðinni mezze rigatoni bolognese í rjómalagaðri pestósósu …
Hér er á ferðinni mezze rigatoni bolognese í rjómalagaðri pestósósu með ristuðum panko raspi sem bragðast alveg dásamlega vel og kemur úr smiðju Snorra Guðmundssonar matgæðings. Samsett mynd

Hér er á ferðinni fullkomin pastauppskrift, sem kemur úr smiðju Snorra Guðmundssonar, sem er tilvalin til að elda í í miðri viku þegar tíminn er af skornum skammti en kolvetnaþörfin sterk.  Snorri heldur úti uppskriftasíðunni Matur og myndir þar sem hann deilir sínum uppáhaldsuppskriftum.

Þetta fljótlegt mezze rigatoni bolognese í rjómalagaðri pestósósu með ristuðum panko raspi sem bragðast alveg dásamlega vel.

„Rjómalöguð pestósósan verður silkimjúk þegar pastað fær að malla í stutta stund í henni og ristaði panko raspurinn gefur virkilega skemmtilegt kröns og gerir hvern einasta bita skemmtilegan,“ segir Snorri og bætir við að hver og einn geti auðvitað kryddað eftir smekk og valið hvaða krydd eigi fyrir sig og sína.

Girnilegur og fljótlegur pastaréttur.
Girnilegur og fljótlegur pastaréttur. Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

Mezze rigatoni bolognese í rjómalagaðri pestósósu

Fyrir 2

  • 300 g ungnautahakk
  • 200 g Mezze rigatoni
  • 200 g niðursoðnir tómatar
  • 80 ml rjómi
  • 50 g rautt pestó
  • 1 msk. tómatpúrra
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • 1 tsk. kjötkraftur
  • ½ tsk. fennelduft, má sleppa ef vill
  • 0,25 tsk. chiliflögur, má sleppa ef vill
  • ½ dl Panko brauðraspur
  • 6 g fersk steinselja
  • 20 g parmesanostur 

Aðferð:

  1. Setjið vatn í pott með ríflegu magni af salti og náið upp suðu.
  2. Hitið pönnu við meðalháan hita og bætið smá olíu út á.
  3. Bætið panko út á pönnuna og ristið þar til hann hefur tekið fallegan lit. Takið til hliðar og þurrkið létt úr pönnunni.
  4. Bætið olíu út á pönnuna og steikið kjötið þar til það er fulleldað.
  5. Bætið tómatpúrru, kjötkrafti, fenneldufti, chiliflögum og hvítlauksdufti út á pönnuna og steikið í stutta stund.
  6. Bætið niðursoðnum tómötum, pestó og rjóma út á pönnuna, blandið vel saman og lækkið hitann ögn.
  7. Rífið helminginn af parmesanostinum saman við og látið svo malla undir loki á meðan pasta er soðið.
  8. Takið lokið af pönnunni þegar nokkrar mín eru í að pastað sé tilbúið og sjóðið sósuna aðeins niður.
  9. Smakkið til með salti.
  10. Bætið pasta út í pottinn með sjóðandi vatninu og sjóðið eftir leiðbeiningum á umbúðum.
  11. Sigtið vatnið frá pastanu og og blandið saman við kjötsósuna á pönnunni.
  12. Látið allt malla saman í stutta stund. Sterkjan úr pastanu mun þykkja sósuna enn frekar.
  13. Rífið restina af parmesanostinum saman við pastaréttinn og saxið steinselju saman við. Blandið vel saman.
  14. Toppið með panko raspi og berið fram með auka parmesanosti og fersku salati til hliðar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert