Hér er einföld og sniðug uppskrift sem upplagt er að gera í hádeginu eða bara þegar þig langar góðan og hollan mat. Það er hægt að leika sér með innihaldið sem sett er í bökuna, þú einfaldlega skerð niður þitt uppáhaldsgrænmeti eða nýtir afgangana í ísskápnum. Helga Magga heilsumarkþjálfi gerði uppskriftina fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.
Ofnbökuð ommeletta með kotasælu
- 1 stk. tortilla kaka
- 2 stk. egg
- 100 g kotasæla
- Paprika eftir smekk
- Vorlaukur eftir smekk
- Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
Aðferð:
- Setjið tortillu köku í skál eða eldfast mót sem má fara í ofn.
- Það er gott að nota bökunarpappír undir tortilluna svo hún festist síður við skálina/mótið.
- Setjið tortilluna ofan á bökunarpappírinn og myndið skál úr henni.
- Hrærið saman tvö egg ásamt 100 g af kotasælu og setjið ofan í tortillu-skálina.
- Skerið niður grænmeti og setjið út, t.d. papriku og vorlauk eða grænmeti að eigin vali.
- Kryddið til með smá salti, pipar og hvítlauksdufti.
- Hitið ofninn í 190°C hita og bakið tortilluskálina með blöndunni í um það bil 30 mínútur.
- Berið fram og njótið.