Hver man ekki eftir þessari nostalgíu kakósúpunni með tvíbökum? Nú er komið að næstu uppskrift úr Húsó-eldhúsinu á matarvefnum og það er einmitt kakósúpan fræga sem hefur gengið í marga ættliði. Líkt og með Húsó-pönnukökurnar þá lærði amma skólameistarans Mörtu Maríu Arnarsdóttur, þessa uppskrift þegar hún gekk í Húsó.
Kakósúpan er fullkomin sem eftirréttur til dæmis eftir fiskrétt. Það getur líka virkað vel sem smá verðlaun fyrir börn að klára fiskinn af disknum, flestum börnin finnst nefnilega kakósúpa agalega góð.
„Persónulega finnst mér hún betri aðeins í þykkari kantinum og hafa aðeins meira kakó en minna, þannig er hún svo ljúffeng. Þetta er kakósúpan sem amma lærði líka þegar hún gekk ú Húsó árið 1950 og súpan hennar hefur ekkert breyst. Ég fullyrði að þetta er langbesta kakósúpuuppskriftin þótt víða væri leitað,“ segir Marta María og brosir.
Uppskriftin er hugsuð fyrir fjóra en annars er reglan í þessu: 1 matskeið kakó og 2 matskeiðar sykur á mann. Þannig er auðvelt að margfalda eftir því hve margir eru í mat. Og það má alveg setja smá kúffullar matskeiðar af kakóinu, hún verður bara betri þannig að sögn Mörtu Maríu.
Kakósúpa
Fyrir 4
Aðferð: