Hér eru á ferðinni dýrðlega páskakúlur, svokallaðar gull sítrónuorkukúlur sem koma úr smiðju Kristjönu Steingrímsdóttur, Jönu. Jana elskar að prófa sig áfram í hollustu uppskriftunum og þar sem páskarnir eru skammt undan langaði hana til að búa til eitthvað páskalegt, næringarríkt og hollt. Þetta er útkoman.
Gull sítrónuorkukúlur
- 2 bollar döðlur steinlausar
- 1 bolli kasjúhnetur
- 1 bolli kókosmjöl
- 4 msk. sítrónusafi
- 1 tsk. sítrónubörkur
- 1 tsk. Gullkrydd/ eða ½ tsk. túrmerik duft
- Smá salt
- Smá auka kókosmjöl til að velta kúlunum upp
Aðferð:
- Setjið allt nema pínu auka kókosmjöl í matvinnsluvél.
- Blandið vel saman þar til blandan verður líkt og deig.
- Ef ykkur finnst blandan of þurr er í lagi að setja teskeið af vatni út í og blanda aftur.
- Mótið litlar kúlur, ágætt að vera í hönskum þar sem Gullkryddið litar aðeins.
- Rúllið kúlunum upp úr kókosmjöli og leggðu á bökunarpappír og frystið.
- Geymið kúlurnar í loftþéttu boxi í frysti.