Þessi réttur kemur úr smiðju Hönnu Thordarson keramiker og ástríðukokki og er í uppáhaldi hjá Dagnýju vinkonu hennar. Hér er á ferðinni ítalskt melanzane alla parmigiana þar sem eggaldin er í aðalhlutverki ásamt tómötum og mozzarella osti. „Við lærðum að búa hann til á matreiðslunámskeiðinu í Flórens hér um árið. Það hefur verið lengi á dagskrá að setja inn uppskriftina að þessum rétt inn á uppskriftasíðuna mína Hanna.is en þar sem heimilisfólkið átti erfitt með að sannfærast um ágæti réttarins varð hann alltaf undir. En viti menn svo kemur í ljós að hann þykir bara nokkuð góður. Það má mæla með þessum rétti, sérstaklega fyrir þá sem eru grænir og vænir en líka hina,“ segir Hanna.
Melanzane alla parmigiana
- 2-3 meðalstór eggaldin, skorin í þunnar sneiðar (langsum eða þversum)
- 40 g hveiti, sett á disk
- 400 g sólblómaolía
- 500 g tómatar, niðursoðnir eða ferskir, gott að nota tómata sem liggja undir skemmdum
- 200 g mozzarella ostur, aðeins kreistur og skorinn í smá bita
- Ólífuolía eftir smekk
- Salt eftir smekk
- 10-15 basillauf, söxuð. Einnig má nota þurrkað basil
- 2-4 hvítlauksrif, söxuð
- Parmesanostur, rifinn fínt
Aðferð:
- Veltið eggaldinsneiðunum létt upp úr hveitinu, ágætt að dusta hveitið aðeins af, þá verður það síður eftir í olíunni þegar það er steikt.
- Setjið olíu í djúpa pönnu eða pott og hitið, gott að stinga hitamæli í olíuna til að sjá hvenær réttu hitastigi er náð þ.e. 180° – 200°C.
- Steikið eggaldinsneiðarnar á báðum hliðum. Athugið olían þarf alls ekki að vera svo mikil bara þannig að sneiðarnar nái að steikjast vel.
- Þær eru tilbúnar þegar þær hafa náð gulbrúnum lit.
- Leggið sneiðarnar á eldhúspappír þegar þær eru tilbúnar og stráið salti yfir.
Sósan
- Setjið saxaðan hvítlauk ofan í heita pönnu eða pott með olíu í, og hrærið.
- Bætið tómötum og hluta af basil við.
- Látið malla í 15 mínútur.
- Hitið ofninn í 180°C
Samsetning:
- Setjið fyrst er lag af tómatmauki í eldfast fat eða í Hönnupott má setja bæði í efri og neðri hlutan).
- Dreifið eggaldinsneiðum yfir og síðan mozzarellabitum.
- Stráið að lokum parmesanosti yfir.
- Síðan aftur, tómatmauk, eggaldin, mozzarella, parmesan. Þegar 3 – 4 lög af eggaldini eru komin endið þið með tómatmauki og parmesanosti.
- Það er svolítið smekksatriði hversu margar eggaldinsneiðar eru settar í hvert lag, þær geta verið mjög þétt saman eða ekki þétt saman, fer eftir smekk hvers og eins.
- Bakið í ofni í 20-25 mínútur.
- Njótið með þeim sem elska ítalskan mat eldaðan ástríðu og natni.