Danska hönnunarmerkið Ro Collection kynnti á dögunum endurbætta og uppfærða útgáfu af þeirra vinsælasta matarstelli, Signature, og nú einnig í nýjum fallegum litum, soft sand, pale green og deep ocean, en það eru litir sem eru úr danskri náttúru.
Signature-matarstellið er innblásið af japanskri fagurfræði og með danskt notagildi í huga, það er handgert í fjölskyldurekinni verksmiðju í Portúgal og mega vörurnar bæði fara í ofn og uppþvottavél ásamt því að stellið staflast vel.
Ro Collection matarstellið fæst meðal annars í Epal lífsstíls- og hönnunarversluninni.
Hér fyrir neðan má sjá brot af þessu fallega matarstelli sem er bæði stílhreint og tímalaust og maturinn fær að skarta sínu fegursta á diskunum.