Sindri Guðbrandur Sigurðsson matreiðslumaður og núverandi Kokkur ársins er mættur með Bocuse d’Or teymið sitt til Þrándheims í Noregi þar sem hann keppir fyrir Íslands hönd í undankeppni Bocuse d'Or. Alls taka 20 þjóðir þátt í undankeppninni og 10 efstu keppendur komast í úrslitakeppnina sem haldin verður í Lyon.
Í teyminu hans Sindra eru Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumeistari og eigandi ÓX, Hinrik Örn Halldórsson, sem verður aðstoðarmaður Sindra í búrinu og þjálfari Sindra sem og meðeigandi hans að veisluþjónustunni Flóru, Sigurjón Bragi Geirsson matreiðslumaður. Þráinn og Sigurjón hafa báðir keppt í Bocuse d’or og náð framúrskarandi árangri.
„Við erum að byrja keppnina klukkan 9.00 í fyrramálið og fyrstu skil á hreindýri og ákavíti eru klukkan 13.55 og næstu skil klukkan 14.30 sem er fat sem saman stendur af þorski og hörpuskel,“ segir Sindri spenntur, en undirbúningur fyrir keppnina hefur staðið í nokkra mánuði.
Aðalkeppnin verður í Lyon
„Þetta er stærsta matreiðslukeppnin í heiminum verður haldin á mismunandi stöðum í Evrópu fyrir Evrópukeppnina en aðalkeppnin er verður haldin í Lyon í Frakklandi í janúar á næsta ári,“ segir Sindri sem ætlar sér stóra hluti. Sindri stefnir að því að fara alla leið. Margir af stærstu kokkum í heiminum eru í kringum keppnina og má þar nefna Paul Bocuse, Rasmus Kofoed, Claire Smith og Thomas Keller svo fáir séu nefndir.
Fyrir áhugasama má fylgjast með keppninni í fyrramálið í beinni útsendingu hér.
Jafnframt má fylgjast með teyminu á Instagram-síðum þeirra hér: