Heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni á Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og hann fær hið skemmtilega en vandasama verk að velja matseðilinn fyrir páskahátíðina. Kjöt og fiskur er í uppáhaldi hjá Ísaki Aroni og fær það hráefni að njóta sín á matseðlinum.
Ísak Aron sérhæfir sig í einkamatarboðum og er með sína eigin veisluþjónustu, ZAK veitingar. Hann hefur komið víða við í matargerðinni og liggur ástríða hans í matreiðslu. Hann byrjaði að læra matreiðslumanninn aðeins 15 ára gamall og hefur verið að í tíu ár að læra og vinna á hinum ýmsum stöðum. Ísak hefur náð framúrskarandi árangri í keppnismatreiðslu á undanförnum misserum og núna síðast með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleikunum í matreiðslu í febrúar síðastliðnum en landsliðið kom heim með tvenn gullverðlaun og brons fyrir heildarframmistöðu sem er framúrskarandi árangur hjá liðinu.
„Matarástríðan mín liggur í því að vinna með fyrsta flokks hráefni sem við finnum hér á Íslandi, fiskur og íslenska lambið er í uppáhaldi hjá mér og er það alltaf í fyrirrúmi. Þegar ég elda vil ég líka að fólk muni eftir því. Að búa til minningu fyrir fólk endist mun lengur en bragðgóð sósa, þótt það sé fátt sem skákar góðri sósu,“ segir Ísak Aron.
„Á vikumatseðilinn minn vel ég ávallt kjöt, fisk eða kjúkling, klassískir réttir eða með tvisti. Auðvitað þarf maturinn líka að líta vel út á disknum og vera bragðgóður á sama tíma og því hef ég valið þessa rétti hér sem ég veit að eiga eftir að slá í gegn. Vert er að gera vel við sig um páskana og leggja þá aðeins meiri metnað í matargerðina,“ segir Ísak Aron með bros á vör.
Mánudagur – Ofnbakaður fiskur í ostasósu með makkarónum
„Mánudagar eru fiskidagar fyrir mér og ég dýrka makkarónur, þess vegna finnst mér tilvalið að skella í ofnbakaðan fisk í ostasósu með makkarónum. Það skemmir ekki fyrir að það sé salami með.“
Þriðjudagur – Tagine kjúklingur að hætti Marokkó
„Á þriðjudögum finnst mér kjúklingur og hrísgrjón í uppáhaldi. Tilvalið að krydda aðeins upp á tilveruna og hafa það marokkóskt.“
Miðvikudagur – Cannelloni með smá tvisti
„Það er lasanja kvöld á miðvikudögum en nú með smá tvisti, alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt en cannelloni brýtur aðeins upp á lasanja-leikinn.“
Fimmtudagur – Klassísk kjötsúpa
„Ég er algjörlega veikur fyrir íslenskri kjötsúpu svo hún verður á fimmtudegi til að koma manni í gírinn fyrir helgina.“
Föstudagurinn langi – Frönsk nautalund með trufflum og foie gras
„Föstudagurinn langi er líklega minn minnst uppáhaldsdagur ársins en ég bæti það upp með að bjóða upp á minn uppáhaldsrétt. Franska nautalund með trufflum og foie gras. Til að fylgja eftir veislunni ætla ég líka að bjóða upp á dýrindis bakaða eplahasselback í eftirrétt.“
Laugardagur - Sjávarréttasúpa
„Á laugardögum finnst mér oft gott að hafa eitthvað létt í magann svona fyrir kvöldið og því fáum við fjölskyldan okkur sjávarréttarsúpu.“
Páskadagur - Páskabröns
„Á páskasunnudegi er frábært að henda í léttan bröns fyrir fjölskylduna, þar kemur þessi réttur sterkur inn, „Egg Benedict“ með reyktum laxi í sælkera útgáfu. Það þarf ekki alltaf að vera með fullt af úrvali í brönsi, oft þykir mér gott að setja fókusinn á einn rétt og hafa hann verulega góðan.“
Reyktur lax og hleypt egg benedict með hollandaise og dilli á ristuðu súrdeigsbrauði
Fyrir 4
Aðferð:
Hollandaise
Aðferð:
Kvöldmatur á páskadag
„Á páskunum er ég ávallt lamb, hvort sem það er lambafille, skankar eða læri. Hér er uppskrift af páskalambalæri sem ég dýrka, ég hef síðan stappaða kartöflumús og rauðvínsgljáa með því og allir sáttir.“