Þetta girnilega og litríka salat með appelsínu- og engiferdressingu er salat vikunnar á matarvefnum og heiðurinn af þessari uppskrift á Hildur Ómarsdóttir sem heldur úti uppskriftasíðunni Hildur Ómars. Salat vikunnar er fastur liður á matarvefnum og verður valið úr þeim salatuppskriftum sem birtast á matarvefnum og undirrituð verður búin að útbúa og smakka. Eftir veislumatinn og súkkulaðiátið um páskana er ekkert betra en að fá sér ljúffengt og ferskt salat sem gleður bæði líkama og sál. Ég get vel mælt með þessu salati og dressing er hreint út sagt ómótstæðilega góð.